Með hótunum Evrópusambandsins um að leggja tolla á Ísland þvert á EES-samninginn er verið að gera grundvallarbreytingar á EES-samningnum. Þetta er á meðal þess sem fram kom í viðtali sem mbl.is tók við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, og birt var í gær. Minnti hún þannig á það að Ísland væri fullgildur aðili að innri markaði sambandsins í gegnum samninginn og í fyrirhuguðum aðgerðum þess fælist grundvallarbreyting á honum.
Helzta forsendan fyrir aðild Íslands að EES-samningnum á sínum tíma var að njóta betri tollakjara fyrir helztu útflutningsvörur landsins. Þegar hafði þó verið samið um tollfrelsi fyrir iðnaðarvörur framleiddar hér á landi í gegnum fríverzlunarsamning Íslands við Efnhagsbandalag Evrópu, forvera Evrópusambandsins, frá 1972 sem enn er í fullu gildi auk stórs hluta útfluttra sjávarafurða. Hótun sambandsins um tolla á Ísland felur þannig vissulega í sér forsendubrest.
Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði grafalvarlegt að Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefði ekki tjáð sig um tollamálið í ljósi þeirra miklu þjóðarhagsmuna sem í húfi væru. Þar þyrfti hún að sýna forystu. „Við verðum að geta treyst því að æðstu stjórnvöld Íslands séu að verja hagsmuni okkar. Hagsmunagæzla fer ekki í sumarfrí.“ Fram kom í fjölmiðlum í dag að ekki væri von á viðbrögðum frá Kristrúnu fyrr en um eða eftir helgina.
Sagðist Guðrún hafa ákveðnar áhyggjur af því að ríkisstjórnin og Evrópusambandið hefðu í hyggju að reyna að beita þvingunum til þess að reyna að fá þjóðina til þess að ganga í sambandið. Ljóst væri að ríkisstjórnin vildi koma Íslandi inn í Evrópusambandið eins hratt og mögulegt væri og með öllum tiltækum ráðum. Hins vegar hlytu hagsmunir lands og þjóðar að hafa forgang á það hvaða afstöðu fólk kynni að hafa til þess máls. Sameinazt þyrftu um að verja hagsmuni Íslands.
„Ég lít á þetta tollamál sem algjört andvaraleysi gagnvart íslenzkum hagsmunum og ef þetta andvaraleysi er afleiðing af umsóknarferli ríkisstjórnarinnar inn í ESB til að sýna einhvern veginn fram á að hagsmunum okkar sé betur borgið þar, þá vil ég bara segja skýrt að íslenzka þjóðin verður aldrei kúguð inn í ESB,“ sagði hún: „Við verðum að tala einum rómi, óháð flokkslínum og við verðum að krefjast þess að íslenzk störf og atvinnulíf séu varin af einurð og ábyrgð.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
