Kristrún utan þjónustusvæðis

Fyrr á árinu var Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnd fyrir það að hafa ákveðið að halda sig við þau áform sín að mæta í útskrift sonar síns úr bandarískum háskóla á sama tíma og fyrsta umræðan um veiðigjaldafrumvarpið fór fram. Umræða sem er fyrst og fremst formsatriði. Ekki sízt af stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar. Hins vegar stöndum við nú frammi fyrir hótun Evrópusambandsins um að tolla á landið þvert á EES-samninginn sem gætu haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar. Þá heyrist ekkert í Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar.

Fjölmiðlar reyndu ítrekað að ná í Kristrúnu þegar málið komst í hámæli um síðustu helgi en gripu í tómt. Forsætisráðherrann var einfaldlega utan þjónustusvæðis. Utan landssteinanna. Loks komu skilaboð frá aðstoðarmanni hennar á þriðjudaginn um að hún myndi ekki tjá sig um málið fyrr en um eða eftir næstu helgi. Mál þar sem fyrir liggur að miklir þjóðarhagsmunir eru í húfi og mikilvægt að bregðast hratt og vel við til þess að verja hagsmuni lands og þjóðar. Ekki einungis formsatriði eins og fyrsta umræða um lagafrumvarp. En forsætisráðherrann er í fríi og á meðan geta hagsmunir þjóðarinnar beðið.

„Við verðum að geta treyst því að æðstu stjórn­völd Íslands séu að verja hags­muni okk­ar. Hags­muna­gæzla fer ekki í sum­ar­frí,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, fyrr í vikunni vegna þagnar Kristrúnar. Grafalvarlegt væri að forsætisráðherra hefði ekki tjáð sig um málið í ljósi alvarleika þess. Þar þyrfti hún að sýna forystu. Þá hefur Guðrún lagt áherzlu á mikilvægi þess að stjórn og stjórnarandstaða sneru bökum saman í ljósi stöðunnar. „Við verðum að tala ein­um rómi, óháð flokkslín­um og við verðum að krefjast þess að ís­lenzk störf og at­vinnu­líf séu var­in af ein­urð og ábyrgð.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)