„Kolefnisjafni maður er þetta eini valkosturinn fyrir einhvern eins og mig sem ferðast um heiminn til þess að sigra í þessari baráttu,“ sagði John Kerry, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og sérstaktur fulltrúi Bandaríkjaforseta í loftlagsmálum, í samtali við Ríkisútvarpið 12. október 2019 spurður hvort það gæti talizt mjög umhverfisvænn ferðamáti að ferðast til Íslands með einkaþotu en hann var þá staddur hér á landi vegna Hringboðs norðurslóðanna.
Kerry taldi þvínæst upp þau afrek sem hann vildi meina að hann hefði unnið í loftlagsmálum og bætti síðan við: „Ég tel að tíminn sem það tekur mig að komast eitthvað, ég get ekki siglt yfir hafið, ég verð að fljúga, til þess að hitta fólk og koma hlutum í verk. Það sem ég er að gera nánast í fullri vinnu er að vinna að því að sigra í baráttunni við loftlagsbreytingar og að lokum, ef ég kolefnisjafna og helga henni líf mitt þá þarf ég ekki að fara í vörn fyrir það [að ferðast um á einkaþotu].“
Með öðrum orðum virtist Kerry ekki hafa heyrt minnzt á almennt farþegaflug. Einungis skipaferðir og einkaþotur. Mörgum hefur annars þótt mikill tvískinnungur felast í því að ýmsir framámenn í stjórnmálum og viðskiptalífinu telji sig geta predikað yfir almenningi að neita sér um ýmis þægindi í þágu umhverfismála á sama tíma og þeir ætli ljóslega ekki að gefa neinn afslátt af eigin lífsgæðum sem þess utan eru gjarnan langt umfram það sem venjulegt fólk getur yfir höfuð leyft sér.
Viðtalið við Kerry í Ríkisútvarpinu hefur þótt afar lýsandi í þessum efnum. Hann er kvæntur inn í Heinz-fjölskylduna í Bandaríkjunum sem meðal annars á samnefnt tómatsósuveldi en einkaþotan sem hann notaði var í eigu fyrirtækisins. Kerry var í kjölfar viðtalsins harðlega gagnrýndur í Bandaríkjunum fyrir tvískinnunginn. Bæði fyrir það að ferðast með einkaþotu og reyna síðan að verja það. Þotan var í kjölfarið seld og í framhaldinu uppgötvaði Kerry almennt farþegaflug.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: John Kerry, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna)
