Hindri að fleiri ríki gangi úr ESB

Hlutverk Evrópusambandsins og ríkja þess er að standa vörð um samrunaþróunina innan sambandsins og koma í veg fyrir að fleiri ríki yfirgefi það í kjölfar útgöngu Bretlands. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu sem unnin var fyrir þing Evrópusambandsins og birt í febrúar 2022 eftir að 516 af 705 þingmönnum þess samþykktu hana.

Fram kemur í skýrslunni að mögulegum þjóðaratkvæðagreiðslum í framtíðinni, um útgöngu ríkja úr Evrópusambandinu, ætti að fylgja annað þjóðaratkvæði til staðfestingar á hinu fyrra. En einungis er þó gert ráð fyrir slíkri endurtekningu verði niðurstaða fyrri atkvæðagreiðslunnar sú að segja skilið við sambandið. Annars þyrfti ekki að kjósa á nýjan leik.

Fram kemur í drögum að skýrslu um Ísland og Evrópusambandið sem Gunnar Pálsson, fyrrverandi sendiherra Íslands í Brussel, setti saman árið 2018 að framganga sambandsins í viðræðunum við Breta vegna útgöngu þeirra virtist einkum hafa haft það markmið að hindra að fleiri ríki yfirgæfu það. Skapa þannig víti til varnaðar fyrir önnur ríki þess.

Miðað við viðræður Breta og Evrópusambandsins yrði ekki auðvelt fyrir Ísland að yfirgefa sambandið. „Af útgönguviðræðum Bretlands og ESB má ennfremur draga þá ályktun að ekki yrði áhlaupaverk fyrir fámenna þjóða að endurheimta það fullveldi sem framselt yrði með aðild að sambandinu, skyldi henni snúast hugur síðar meir.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þinghús Evrópusambandsins í Strasbourg. Eigandi: Evrópusambandsþingið)