„Deilur um Evrópu yrðu erfiðar og tímafrekar, betra að einbeita sér að heilbrigðis-, velferðar- og húsnæðismálum þar sem skórinn kreppir verulega. Háleit markmið eru góð, en þau mega ekki vera of mörg og flókin,“ segir Egill Helgason fjölmiðlamaður á Facebook-síðu sinni, Ráðleggur hann mögulegri nýrri ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins að „láta Evrópumálin alveg vera og sætta sig við ríkjandi ástand í þeim.“
Vísar Egill, sem sjálfur hefur lengi verið hlynntur því að Ísland gengi í Evrópusambandið, í því sambandi til mislukkaðrar umsóknar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur um inngöngu í sambandið sumarið 2009. Gekk á ýmsu í umsóknarferlinu og ekki sízt í ljósi þess að stjórnarflokkarnir, Samfylkingin og Vinstrihreyfingin – grænt framboð, voru ósamstíga gagnvart málinu. Gekk það svo langt að sambandið sá ástæðu til þess að lýsa áhyggjum sínum af því.
Til að mynda komu ítrekað fram áhyggjur í þeim efnum hjá fulltrúum Evrópusambandsins sem höfðu eftirlit með ferlinu af hálfu þess. Þar á meðal í skýrslum sem unnar voru fyrir þing sambandsins af rúmenska þingmanninum Cristian Dan Preda. Í skýrslu dagsettri 13. nóvember 2012 sagði þannig til dæmis: „Þing Evrópusambandsins ítrekar áhyggjur sínar af pólitískum ágreiningi innan ríkisstjórnarinnar og stjórnmálaflokkanna varðandi inngönguna í það“.
Mjög skiptar skoðanir eru um færslu Egils í röðum þeirra sem vilja ganga í Evrópusambandið. Margir segjast ósammála honum en aðrir taka undir skrif hans. Þar á meðal Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður sem segir: „Eins einarður stuðningsmaður og ég er við aðild að ESB, þá held að þetta sé hin kalda og rökrétta niðurstaða. Eins og er brenna önnur mál meira á samfélaginu og ESB kyndir bara upp ófriðarbál sem við höfum ekki ráð á né tíma í núna.“
Hliðstæðar deilur urðu í röðum stuðningsmanna inngöngu í Evrópusambandið vegna umsóknarinnar 2009. Eins og nú skiptust þeir í tvær fylkingar. Þá sem töldu aðstæður ekki heppilegar, einkum í ljósi þess að ríkisstjórnin væri klofin gagnvart málinu, sem yrði líklega til þess að skaða málstaðinn og hina sem töldu að þrátt fyrir það yrði að láta reyna á umsókn. Betra tækifæri kæmi ekki. Hinir síðarnefndu urðu ofan á en hinir reyndust hafa rétt fyrir sér.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: almathias)
