Meirihluti Norðmanna er sem fyrr andvígur því að Noregur gangi í Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem fyrirtækið Opinion gerði fyrir vefinn Altinget og fjallað var um á fréttavef norska dagblaðsins Dagsavisen í gær. Þannig eru 55% andvíg inngöngu en 33% henni hlynnt. Aðrir voru óvissir.
Fram kemur í fréttinni að samkvæmt skoðanakönnuninni hafi stuðningur við inngöngu í Evrópusambandið dregizt talsvert saman í Noregi miðað við sambærilega könnun í marz þar sem 40% sögðust hlynnt því að ganga í sambandið. Þá hafi andstaðan aukizt í tveimur síðustu könnunum fyrirtækisins. Könnunin gerð dagana 28. júlí til 3. ágúst.
Hver einsta skoðanakönnun sem birt hefur verið í Noregi frá því á fyrri hluta árs 2005 hefur sýnt fleiri andvíga inngöngu í Evrópusambandið en hlynnta eða samfleytt í meira en 20 ár. Hér á landi var sú raunin frá 2009-2022 eða þar til rússneski herinn réðist inn í Úkraínu. Kannanir hafa nú aftur farið að sýna fleiri andvíga en hlynnta.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)

