Fyrir einum og hálfum mánuði síðan, þann 4. júlí síðastliðinn, sendi Maskína út skoðanakönnun sem innihélt meðal annars spurningu um afstöðu fólks til inngöngu í Evrópusambandið. Niðurstöðurnar hafa enn ekki verið birtar opinberlega. Einhverja daga tekur venjulega að ná inn svörum í könnunum en sjaldnast ef einhvern tímann sex vikur.
Mér er ekki kunnugt um að skoðanakönnunin hafi verið gerð fyrir einhvern aðila sem andvígur er inngöngu í Evrópusambandið. Telja verður líklegra að hún hafi verið gerð fyrir einhvern andstæðrar skoðunar. Ekki sízt í ljósi þess að síðustu tvær kannanir Maskínu sem birtar hafa verið sýndu fleiri andvíga því að gengið væri í sambandið en hlynnta.
Fyrir ári gerði Maskína könnun fyrir Evrópuhreyfinguna meðal annars um það hvort afstaða fólks til sambands Íslands við Evrópusambandið hefði áhrif á það hvaða flokk það hefði í hyggju að kjósa í næstu þingkosningum, sem síðan urðu um haustið, og hvort það hefði í hyggju að kjósa flokk sem væri hlynntur eða andvígur inngöngu í sambandið.
Frá því er skemmst að segja að niðurstöðurnar varðandi þessar spurningar voru aldrei birtar. Hins vegar gerðist það síðan að Viðreisn, líkt og Samfylkingin, kaus aldrei þessu vant að leggja ekki áherzlu á inngöngu í Evrópusambandið í aðdraganda kosninganna og sló í og úr aðspurð hvort málið yrði krafa við myndun mögulegrar ríkisstjórnar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
