Minnstur stuðningur á meðal ungs fólks

Fróðlegt er að rýna nánar í niðurstöður skoðanakönnunar fyrirtækisins Opinion fyrir norsku vefsíðuna Altinget sem sýna sem fyrr meirihluta Norðmanna andvígan inngöngu Noregs í Evrópusambandið eða 55% á móti 33% sem eru henni hlynntir. Fleiri Norðmenn hafa verið andvígir inngöngu í sambandið í öllum könnunum þar í landi í rúm tuttugu ár.

Til dæmis er þannig minnstur stuðningur við inngöngu í Evrópusambandið á meðal fólks undir þrítugu þegar horft er til aldurshópa eða 24% á meðan 60% þess er andvígt því að ganga í sambandið. Á sama tíma er mestur stuðningur við inngöngu á meðal fólks eldra en 70 ára eða 46% sem er eini aldurshópurinn þar sem fleiri eru hlynntir henni.

Forystumenn tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna í Noregi, Hægriflokksins og Verkamannaflokksins, Erna Solberg og forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre, hafa lýst þeirri skoðun sinni að innganga í Evrópusambandið sé ekki og verði ekki á dagskrá þar í landi, hvorki í aðdraganda þingkosninganna sem fram fara næsta haust né eftir þær.

Vitanlega er þó ekkert hægt að fullyrða í þeim efnum þó engar forsendur séu til staðar í Noregi til þess að stefna að inngöngu í Evrópusambandið. Nægir í þeim efnum að horfa til stöðunnar hér á landi þar sem ríkisstjórnin hefur sett málið á dagskrá þrátt fyrir að aðstæður hér á landi séu engan veginn heppilegar til þess. Ekki sízt ósamstíga ríkisstjórn.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Norski fáninn. Eigandi: Evelina Guftafsson)