Hægt að kjósa Netanyahu burt

Fyrir tæpum tveimur áratugum komust hryðjuverkasamtökin Hamas til valda á Gazaströndinni í lýðræðislegum kosningum. Síðan þá hafa hins vegar engar slíkar kosningar farið fram. Hamas hlaut kjör til fjögurra ára en hafa farið með völdin í um fimmtán ár umfram það. Kosið hefur verið á sama tíma átta sinnum til þings í Ísrael. Hvað sem öðru líður er þannig hægt að reka ísraelska ráðamenn í lýðræðislegum kosningum. Þar með talinn núverandi forsætisráðherra landsins, Benjamin Netanyahu. Hins vegar geta íbúar Gazastrandarinnar ekki losnað við Hamas með þeim hætti.

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa um langt árabil fordæmt ógnarstjórn Hamas á Gazaströndinni og ofbeldi þeirra í garð íbúa svæðisins. Fjöldi Palestínumanna hefur þannig verið myrtur af öryggissveitum samtakanna á þeim tíma sem þau hafa farið með stjórn svæðisins samkvæmt fréttum mannréttindasamtakanna. Ekki sízt vegna upploginna ásakana um að hafa átt í samstarfi við ísraelsk stjórnvöld en einnig fyrir að styðja Fatah, hina helztu hreyfingu Palestínumanna. Þá hefur fjöldi Palestínumanna þurft að þola pyntingar og hótanir af hálfu hryðjuverkasamtakanna.

Meðal annars hefur Amnesty International fordæmt þá framgöngu Hamas að nota tækifærið þegar Ísraelsher hefur gert loftárásir á Gaza til þess að myrða Palestínumenn sem samtökunum hefur verið í nöp við eða beita þá öðru ofbeldi. Þeir hafa síðan verið sagðir hafa farizt í árásunum. Þá ekki sízt stuðningsmenn Fatah. Öryggissveitum Hamas hafi verið gefinn laus taumurinn í þeim efnum. Ásakanir um samstarf við Ísrael hafi gjarnan verið settar fram sem yfirskin. Margir ásakaðir um slíkt hafi verið myrtir á meðan þeir sátu í fangelsi og biðu eftir því að koma fyrir dómara.

Mannréttindasamtökin hafa einnig fordæmt til dæmis ofbeldi Hamas í garð Palestínumanna sem mótmælt hafa stjórnarstefnu samtakanna á Gazaströndinni á undanförnum árum. Ekki sízt hagstjórn þeirra. Skipuleggjendur mótmæla hafi til að mynda verið handteknir og pyntaðir og öryggissveitir Hamas ráðist á friðsama mótmælendur. Þá hafi öryggissveitirnar bæði beitt blaðamenn og starfsmenn mannréttindasamtaka grófu ofbeldi. Meðal annars og ekki sízt fyrir þá sök að safna upplýsingum um ofbeldi samtakanna í garð almennra borgara og miðla þeim til heimsbyggðarinnar.

Forystumenn Hamas voru spurðir af arabískum fjölmiðlum í kjölfar árásar samtakanna á Ísrael í október 2023, þar sem mikill fjöldi óbreyttra borgara var myrtur, hvers vegna þeir hefðu sett almenning á Gazaströndinni í svo gríðarlega hættu með árásinni. Ghazi Hamad, háttsettur forystumaður innan Hamas, var þannig til dæmis spurður að því hvort árásin yrði ekki dýru verði keypt fyrir almenna Palestínumenn á svæðinu. Svaraði hann því játandi en samtökin væru reiðubúin að færa þær fórnir. „Við erum kölluð þjóð píslarvotta og við erum stoltir af því að fórna píslarvottum.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Benjamin Natanyahu, forsætisráðherra Ísraels. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna)