Hræðsluáróðurinn hennar Helgu Völu

Fyrir viku mætti ég á Sprengisand á Bylgjunni og ræddi þar um Evrópusambandið við Helgu Völu Helgadóttur, varaformann Evrópuhreyfingarinnar og fyrrverandi þingmann Samfylkingarinnar. Umræðan var almennt hin ágætasta en á einum stað í henni kaus Helga Vala að saka mig um hræðsluáróður fyrir þá sök að benda á þá staðreynd að markmiðið með samrunanum innan sambandsins og forvera þess allt frá upphafi hafi verið að til yrði að lokum evrópskt sambandsríki.

Hins vegar færði Helga Vala vitanlega engin rök fyrir ásökun sinni. Sagði aðeins orð mín dæmi um hræðsluáróður í umræðunni. Ég benti hins vegar á það þegar ég fékk orðið aftur að ólíkt henni hefði ég fært ýmis rök fyrir máli mínu. Ekki kom því á óvart að hún skyldi ekki gera frekari tilraunir í þættinum til þess að stimpla málflutning minn ranglega sem hræðsluáróður. Hitt er svo annað mál að ætla mætti að harður Evrópusambandssinni þekkti sögu sambandsins betur en þetta.

Fyrir það fyrsta kom fram í Schuman-yfirlýsingunni frá 1950, sem markaði upphaf Evrópusambandsins eins og við þekkjum það í dag, að fyrsta skrefið væri að koma kola- og stálframleiðslu Evrópuríkja undir eina yfirþjóðlega stjórn en lokamarkmiðið evrópskt sambandsríki. Fram kemur ítrekað í endurminningum franska diplómatans Jeans Monnet, sem öðrum fremur hefur verið kallaður faðir sambandsins, að lokamarkmiðið samrunans væri sambandsríki, Bandaríki Evrópu.

Hrein leitun hefur verið að forystumönnum hjá Evrópusambandinu og ríkjum þess sem ekki hafa verið yfirlýstir stuðningsmenn markmiðsins um sambandsríki. Þar á meðal allir forsetar framkvæmdastjórnar sambandsins undanfarna áratugi. Síðasta ríkisstjórn Þýzkalands hafði áframhaldandi þróun Evrópusambandsins í átt að sambandsríki í stjórnarsáttmála sínum. Þar var orðið „áframhaldandi“ lykilatriði enda hefur sambandið á liðnum árum öðlast sífellt fleiri einkenni ríkis.

Meðal þeirra samtaka sem unnið hafa ötullega að lokamarkmiði samrunans innan Evrópusambandsins um evrópskt sambandsríki allt frá stofnun þeirra skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar eru regnhlífarsamtökin European Movement International. Núverandi forseti samtakanna Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, hefur verið einhver harðasti talsmaður þess og ritaði til að mynda um árið bók sem heitir einfaldlega Bandaríki Evrópu.

Regnhlífarsamtökin samanstanda af samtökum frá flestum Evrópuríkjum og þar á meðal frá Íslandi en Evrópuhreyfingin er aðili að þeim. Fyrir utan annað er Helga Vala þannig varaformaður hreyfingar sem aðild á að evrópskum samtökum sem unnið hafa í áratugi að því að til verði evrópskt sambandsríki. Veit hún ekki hvers konar samtökum hún er í forsvari fyrir? Svo virðist ekki vera. Hversu trúverðugur er þá málflutningur hennar fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið?

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þinghús Evrópusambandsins í Strasbourg. Eigandi: Evrópusambandsþingið)