Vaxandi þrýstingur á Trudeau að segja af sér

Taldar eru vaxandi líkur á því að minnihlutastjórn Frjálslynda flokksins í Kanada undir forystu Justins Trudeau forsætisráðherra hrökklist frá völdum fjótlega eftir áramótin en hún hefur í vaxandi mæli átt undir högg að sækja á undanförnum mánuðum. Nýi lýðræðisflokkurinn varði stjórnina lengst af falli en hefur nú gengið í raðir þeirra sem kalla eftir afsögn forsætisráðherrans en þar á meðal eru fjölmargir þingmenn hans eigin flokks.

Meira en 50 þingmenn Frjálslynda flokksins í Ontario, fjölmennasta fylkis Kanada og öflugasta vígi flokksins, kölluðu nú síðast eftir afsögn Trudeaus eftir að hafa fundað um stöðu hans síðastliðinni laugardag. „Það er ekkert annað í boði en að skipt verði um forystu núna,“ hefur Reuters eftir þingmanninum Chandra Arya sem lengi hefur stutt forsætisráðherrann. Hefur nú um helmingur þingmanna flokksins, sem eru 153 í heildina, kallað eftir afsögn Trudeaus.


Trudeau varð fyrir miklu áfalli á dögunum þegar Chrystia Freeland, fjármálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra, sagði af sér eftir deilur við hann um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hætti Trudeau og verði svigrúm til þess að velja annan leiðtoga fyrir Frjálslynda flokkinn er talið líklegt að Freeland verði á meðal þeirra sem muni sækjast eftir því að koma í hans stað ásamt fleiri þungaviktarmönnum innan flokksins. Hins vegar virðist ekkert fararsnið a honum.

Haft er eftir heimildarmanni innan Frjálslynda flokksins að Trudeau hefði í hyggju að íhuga stöðu sína yfir jólin og fram yfir áramótin. Stjórnarandstaðan hefur lýst því yfir að í ljósi veikrar stöðu forsætisráðherrans og hótana Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna sem tekur við embætti í lok janúar, um 25% toll á innfluttar kanadískar vörur sé nauðsynlegt að þingkosningar fari fram sem fyrst en kannanir benda til mikils ósigurs Frjálslynda flokksins.

Fram kemur í fréttinni að valkostir Trudeaus séu að halda ótrauður áfram unz lögð verður fram vantrauststillaga á hann og ríkisstjórn hans sem yrði nær örugglega samþykkt, segja af sér í janúar og veita flokknum tækifæri til þess að útnefna leiðtoga til bráðabirgða eða rjúfa þing og gefa flokksmönnum færi á því að velja nýjan leiðtoga og undirbúa sig fyrir kosningar. Hver sem niðurstaðan verður er allavega ljóst að dagar Trudeaus sem forsætisráðherra eru senn taldir.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, og Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada. Eigandi: Hvíta húsið)