Kennsluefni um ESB í boði sambandsins

Meðal þess sem kennt er við Háskólann á Bifröst er námskeiðið Efnahagssamruni Evrópu. Kennari þess er Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar og fyrrverandi varaþingmaður Samfylkingarinnar, og gerð kennslubókarinnar sem kennd er og ber heitið Saga Evrópusamrunans – Evrópusambandið og þátttaka Íslands var styrkt af Jean Monnet-áætlun sambandsins. Afar dæmigert fyrir námskeið á háskólastigi þar sem fjallað er um Evrópusambandið.

„Fjallað er um sögulega þróun samstarfsins og helztu stefnumál Evrópusambandsins, svo sem tollabandalagið, innri markaðinn og tilkomu Efnahags-og myntbandalags Evrópu. Þá er rætt um stofnanalega uppbyggingu ESB og það reglugerðaverk sem samstarfið hvílir á. Einnig er staða Evrópusambandsins í breyttum heimi skoðuð og farið yfir þær áskoranir sem það stendur frammi fyrir, bæði innan frá sem utan. Þá er skoðuð mismunandi afstaða Norðurlandanna gagnvart Evrópusamrunanum og aðkoma Íslands greind í gegnum EFTA-samstarfið og EES-samninginn,“ segir í lýsingu námskeiðisins.

Til að mynda má nefna að Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og að sama skapi fyrrverandi varaþingmaður Samfylkingarinnar, sem kennt hefur fjölmörg námskeið um Evrópusambandið á liðnum árum, hefur verið Jean Monnet-prófessor í tengslum við sérstakan styrk frá sambandinu til kennslu um það. Þá má geta þess að Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur fengið hundruð milljóna króna í styrki frá Evrópusambandinu á liðnum árum.

Ég kynntist þessu umhverfi ágætlega í meistaranámi mínu í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands á sínum tíma. Mér þótti til dæmis Baldur góður kennari þegar kom að því að þekkja efnið vel, hafa áhuga á því og virkja fólk í umræður. Hins vegar var veruleg slagsíða á honum í allri umfjöllun um Evrópusambandið. Hliðstætt mátti segja um fleiri kennara. Þá þótti nemendum alltof mikil áherzla á sambandið á sama tíma og nánast ekkert var fjallað um aðra hluta heimsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)