„Seðlabankinn stöðvaði í dag vaxtalækkunarferlið sem hófst í október 2024. Í aðdraganda kosninga hét forsætisráðherra því að hún myndi negla vextina niður með sleggju. Nú er staðan sú að sleggjunni hefur ekki verið lyft og slagkraftur hennar er enginn. Verðbólga er enn mikil, húsnæði dýrt og vextir háir,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook-síðu sinni í dag vegna ákvörðunar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum.
Fyrir þingkosningarnar í lok nóvember hét Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar of nú forsætisráðherra, að stýrivextirnir yrðu negldir niður og mundaði sem kunnugt er sleggju í kosningamyndbandi til marks um það. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra Viðreisnar, viðurkenndi í fjölmiðlum í gær að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hefði ekki skilað þeim árangri sem stefnt hafi verið að og fyrir vikið þyrfti að grípa til frekari aðgerða í þeim efnum.

Framganga stjórnvalda í þessum efnum hefur raunar skilað svo litlum árangri að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri lýsti því yfir á blaðamannafundi peningastefnunefndar Seðlabankans í morgun að nefndin myndi ekki hika við að hækka vexti aftur ef þess gerðist þörf til þess að ná verðbólgumarkmiði bankans. Vaxtalækkunarferli Seðlabankans hófst síðasta haust í tíð ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar, þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, en hefur nú sem fyrr segir verið stöðvað.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð talað fyrir festu í ríkisfjármálum, aðhaldi í opinberum rekstri og minni álögum á heimili og fyrirtæki. Það er leiðin að lægri vöxtum. En ríkisstjórnin hefur farið þveröfuga leið; aukið útgjöld, hækkað skatta og aukið óvissu. Á sama tíma og Seðlabankinn sendir skýr skilaboð um að vextir haldist háir á meðan verðbólgan þokast ekki frekar í átt að markmiði boðar ríkisstjórnin hverja útgjaldaaukninguna á fætur annarri,“ sagði Guðrún áfram í færslunni.
Formaðurinn benti á að vísbendingar væru um hægari húsnæðisuppbyggingu, að verktakar héldu að sér höndum og framtíðar áformðum væri frestað. „Helsta ástæðan er hár fjármagnskostnaður. Stjórnvöld bregðast við með því að þrengja enn frekar að einkaframtakinu með auknum álögum og þyngra regluverki, sérstaklega í Reykjavík.“ Skortur á húsnæði hefur verið helzta ástæða verðbólgunnar og einkum í höfuðborginni þar sem Samfylkingin hefur aðallega farið með völdin.
Kristrúnu var einnig tíðrætt um það fyrir kosningarnar að flokkurinn hefði „plan“ til þess að ná verðbólgu og vöxtum hratt niður. Í sumar sagði hún hins vegar aðspurð að það myndi taka tíma. „Það er engin sleggja. Ekkert plan,“ sagði Guðrún. „Sjálfstæðisflokkurinn vill frjálst atvinnulíf, lægri álögur og raunverulegar lausnir. Við viljum samfélag þar sem fólk getur keypt sér eigið húsnæði. Ekki samfélag sem treystir á niðurgreiðslur og hvers kyns ríkisafskipti út í hið óendanlega.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Facebook-síða Guðrúnar Hafsteinsdóttur)
