Frjálslega farið með staðreyndir

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins við töku ákvarðana innan sambandsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda varðandi sjávarútvegs- og orkumál og flesta aðra málaflokka okkar. Þannig fengi Ísland sex þingmenn á þing Evrópusambandsins af vel yfir 700 sem væri á við hálfan þingmann á Alþingi. Í ráðherraráði sambandsins, valdamestu stofnun þess, yrði staðan enn verri þar sem að fullu er miðað við íbúafjölda í stað ákveðins gólfs. Þar yrði vægi Íslands fyrir vikið einungis á við 5% hlutdeild í alþingismanni. Þetta yrði „sætið við borðið“.

Kaupsýslumaðurinn Vilhjálmur Þorsteinsson ritaði grein í Morgunblaðið fyrir helgi þar sem hann kallaði eftir inngöngu Íslands í Evrópusambandið líkt og hann hefur gert áratugum saman. Tilefnið var grein Sigurðar Kára Kristjánssonar, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í blaðinu á dögunum sem lýsti andstæðum sjónarmiðum. Sakaði hann Sigurð Kára um staðreyndarvillur en stillti sjálfum sér upp sem fulltrúa staðreynda málsins. Var Vilhjámi einmitt ekki sízt tíðrætt um meint áhrif Íslands innan sambandsins. Hins vegar gleymdist að láta fylgja einhver haldbær rök.

Vafalaust hljómar tal um sæti við borðið ágætlega í eyrum einhverra. Hins vegar er hætt við að það breytist þegar í ljós kemur hvað í því felist. Fyrir vikið passa Evrópusambandssinnar iðulega upp á að ræða það ekki. Með öðrum orðum yrði staðan innan Evrópusambandið ekki ósvipuð og hún er í dag með aðildinni að EES-samningnum þegar kæmi að mögulegum áhrifum. Hins vegar færi þá Ísland til að mynda beint undir stjórn sambandsins og svo gott sem allir málaflokkar okkar yrðu undir en ekki einungis þeir sem falla undir samninginn. Farið yrði þannig úr öskunni í eldinn í þeim efnum.

Þekkir ekki grunnlöggjöf ESB

Tal Vilhjálms um að einangrun Íslands utan Evrópusambandsins dæmir sig vitanlega sjálft. Ætti það við rök að styðjast ætti það þá að sama skapi við um restina af heiminum. Vera í sambandinu er vitanleg enginn mælikvarði í þeim efnum þó harðir Evrópusambandssinnar virðist telja það allan heiminn. Þvert á móti er Ísland á meðal alþjóðatengdustu ríkja heimsins. Miklu fremur má færa rök fyrir því að landið yrði einangrað innan Evrópusambandsins. Til að mynda á bak við tollamúra sambandsins gagnvart ríkjum utan þess og án frelsis síns til þess að semja um sjálfstæða viðskiptasamninga.

Varðandi sjávarútvegsmálin fullyrðir Vilhjálmur að sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins sé einungis hönnuð fyrir deilistofna sem flestir fiskistofnar Íslands falli ekki undir. Hvergi er hins vegar kveðið á um slíkt í Lissabon-sáttmála sambandsins, grunnlöggjöf þess, heldur einfaldlega að valdið yfir málaflokknum sé alfarið í höndum þess, sbr. d-liður, 3. greinar sáttmálans (TFEU). Þar eru einfaldlega allir fiskistofnar undir innan efnahagslögsögu Evrópusambandsins. Eins er ekki kveðið á um neitt slíkt í reglugerð sambandsins nr. 1380/2013 um sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna.

Hvað varðar nálægðarreglu Evrópusambandsins sem Vilhjálmur nefnir til sögunnar á hún ekki við um sjávarútvegsmál þvert á það sem hann heldur fram. Reglan byggir á 3. tölulið 5. greinar Lissabon-sáttmálans (TEU) þar sem tekið er skýrt fram að hún eigi ekki við um þau svið þar sem sambandið fari með fullar valdheimildir. Nokkuð sem einmitt á við um sjávarútvegsmálin sem og margt annað. Mér finnst einhvern veginn eins og þeir sem vilja selja okkur hinum inngöngu í Evrópusambandið ættu að þekkja allavega grunnlöggjöf þess sæmilega í stað þess að fullyrða eitthvað þvert á efni hennar.

Hefur aldrei uppfyllt skilyrðin

Komum við þá að því skemmtilegasta, efnahagsmálunum. Lágir stýrivextir Seðlabanka Evrópusambandsins hafa þannig alls ekki verið birtingarmynd heilbrigðs efnahagsástands á liðnum árum heldur þvert á móti efnahagslegrar stöðnunar með víðast hvar litlum eða engum hagvexti og viðvarandi verulegu atvinnuleysi. Einkum á meðal ungs fólks. Til dæmis var atvinnuleysi 2,8% í júní á Íslandi en á sama tíma miklu meira í flestum ríkjum Evrópusambandsins. Einkum á evrusvæðinu. Þar á meðal 6,7% í Danmörku, 7% í Frakklandi og 9,3% í Finnlandi. Einungis á Möltu var það eilítið minna eða 2,5%.

Fullyrðingar um að krónunni sé um að kenna þegar kemur að vöxtum og verðbólgu standast ekki skoðun eins og til dæmis dr. Ólafur Margeirsson hagfræðingur hefur fært gild rök fyrir. Væru háir vextir til dæmis afleiðing smæðar gjaldmiðilsins hefur Ólafur bent á að það sama ætti þá að gilda um aðra smáa sjálfstæða gjaldmiðla. Fylgnin þar á milli væri hins vegar mjög veik. Hið sama ætti við um virðisrýrnun krónunnar í gegnum tíðina. Hún væri fyrst og fremst afleiðing þess að of mikið hefði verið búið til af henni sem aftur hefði leitt til verðbólgu. Gjaldmiðillinn byggi sig vitanlega ekki til sjálfur. 

Fyrst og fremst væri um að ræða þá umgjörð sem sköpuð hefði verið í kringum krónuna. Rétt eins og í tilfelli evrunnar. Það er til dæmis ekki sök evrunnar að evrusvæðið hafi aldrei, og muni líklega aldrei, uppfyllt einu sinni eitt af fjórum skilyrðum kenningar kanadíska hagfræðingsins Roberts Mundell um hið hagkvæma myntsvæði þrátt fyrir að vera sagt reist á henni. Heldur ekki að á svæðinu sé ein peningastefna en 20 oft á tíðum mjög ólíkar efnahagsstefnur sem eiga enga samleið í einu myntbandalagi. Yfirleitt þykir jú ærið verkefni að samræma einungis eina peningastefnu og eina efnahagsstefnu.

Spilaborgin hrynji einn daginn

Harðir Evrópusambandssnnar hafa fyrir vikið lýst miklum áhyggjum sínum af framtíð evrunnar. Þar á meðal Jacques heitinn Delors, sem var forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þegar hún var sett á laggirnar, og Otmar Issing, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópusambandsins. Delors lýsti því til að mynda yfir í fjölmiðlum fyrir nokkrum árum síðan að evrusvæðið hefði verið meingallað frá upphafi vegna þess hvernig staðið hefði verið að því. Þeir ágallar hefðu ekki verið lagfærðir. Fyrir vikið hefði það verið dauðadæmt frá byrjun. Enn bólar ekkert á þeim lagfæringum.

Hvað Issing varðar sagði hann við fjölmiðla fyrir ekki alls löngu að af þessum sökum væri aðeins tímaspursmál hvenær spilaborgin hryndi eins og hann orðaði það. „Horft raunsætt á málið mun þetta snúast um það að reyna að halda sjó og ströggla frá einni krísu til þeirrar næstu. Það er erfitt að spá fyrir um það hversu lengi þetta mun halda áfram með þeim hætti en það getur ekki gengið þannig endalaust.“ Þetta hefur hagfræðingurinn og nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz einnig bent á. Fjöldi efnahagskrísa á evrusvæðinu frá upphafi og slakur efnahagsárangur væri afleiðing þess.

Hefði hagfræði ráðið för en ekki pólitík hefði evrusvæðið aðeins samanstaðið af ríkjum sem ættu næga efnahagslega samleið að mati Issings; Frakklandi, Þýzkalandi og Benelúx-löndunum. Hins vegar réð sú pólitík förinni að evran væri fyrst og fremst stórt skref í áttina að lokamarkmiðinu með samrunanum innan Evrópusambandsins og forvera þess frá upphafi að til verði sambandsríki. Það er ekki að ástæðulausu að hérlendir Evrópusambandssinnar eins og Vilhjálmur vilja aðeins tala um meinta galla krónunnar en ekki galla evrusvæðisins. Ef einhver gjaldmiðill er handónýtur er það evran.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 26. ágúst 2025)

(Ljósmynd: Frá Reykjavík. Eigandi: Szilas)