Fyrir rúmum tíu árum síðan sömdu Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar um makrílveiðar í kjölfar þess að sambandið hafði knúið Færeyinga að samningaborðinu með refsiaðgerðum vegna síldveiða þeirra í þeirra eigin lögsögu. Stjórnvöld á Írlandi beittu sér af krafti gegn samningnum í ráðherraráði Evrópusambandsins en lutu að lokum í lægra haldi í atkvæðagreiðslu innan ráðsins þrátt fyrir að um væri að ræða mikla hagsmuni fyrir írskan sjávarútveg sem þarlendir ráðamenn sögðu samninginn setja í uppnám en makríll er mikilvægasti nytjastofn Írlands sem skiptir miklu fyrir þarlendar strandbyggðir.
„Ríkisstjórn okkar og [Simon] Coveney sjávarútvegsráðherra börðust af hörku gegn þessu en þetta snýst allt um atkvæði á vettvangi Evrópusambandsins. Þýzkaland hafði ekki áhuga á þessu og Bretland vildi aðeins binda endi á bannið á innflutningi á fiski frá Færeyjum. Írland er aðeins lítill fiskur í þessari tjörn. Við áttum aldrei möguleika,“ sagði Martin Howley, formaður Samtaka sjómanna í Killybegs, stærsta útgerðarbæ Írlands, við írska dagblaðið Irish Examiner í kjölfar þess að samningurinn var undirritaður en Bretar voru þá enn innan Evrópusambandsins og yfirgáfu það nokkrum árum síðar.
Dönsk stjórnvöld höfðu áður orðið undir í ráðherraráði Evrópusambandsins þegar tekin var ákvörðun um það að beita Færeyinga áðurnefndum refsiaðgerðum vegna veiða þeirra á síld í færeyskri lögsögu. Danskir ráðamenn höfðu beitt sér gegn því að til aðgerðanna yrði gripið en allt fyrir ekki. Fyrir vikið urðu stjórnvöld í Danmörku að sætta sig við það að taka þátt í refsiaðgerðum sambandsins gegn Færeyjum, hluta af danska konungdæminu. Meðal annars með því að loka höfnum landsins fyrir færeyskum fiskiskipum. Þótti málið eðlilega hið neyðarlegasta fyrir ráðamenn í Kaupmannahöfn.
Hvorki fulltrúar Íra, Dana eða annarra þjóða innan Evrópusambandsins sátu við borðið þegar samið var um makrílveiðarnar. Ríki sambandsins hafa enda framselt vald sitt til þess að semja meðal annars um fiskveiðar og viðskipti til stofnana þess. Þar sátu fyrir vikið einungis fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Norðmanna og Færeyinga. Færeyingar eru sem kunnugt er ekki fullvalda þjóð en hafa heimastjórn og ráða fyrir vikið meðal annars eigin sjávarútvegsmálum. Ólíkt ríkjum sambandsins. Fulltrúar ríkja sambandsins biðu frammi á gangi og þurftu að spyrja frétta eftir fundina.
Hversu fjölmenn ríki Evrópusambandsins eru ræður þannig fyrst og fremst vægi þeirra þegar ákvarðanir eru teknar innan sambandsins. Írar og Danir eru sem kunnugt er milljónaþjóðir og fyrir vikið í margfalt sterkari stöðu til þess að hafa áhrif á ákvarðanir innan Evrópusambandsins en Ísland væri landið innan þess. Hins vegar dugði það þeim afar skammt í þessum tilfellum og fjölmörgum öðrum. Innan sambandsins yrði vægi Íslands í ráðherraráðinu, valdamestu stofnun þess, allajafna á við einungis 5% hlutdeild í þingmanni á Alþingi. Þetta yrði sætið við borðið innan Evrópusambandsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Killybegs á Írlandi. Eigandi: Joseph Mischyshyn)
