Fær fjármagn frá Evrópusambandinu

Fyrir síðustu helgi fjallaði ég um regnhlífarsamtökin European Movement International sem starfað hafa síðan skömmu eftir lok síðari heimstyrjaldarinnar og hafa haft það meginmarkmið síðan að til verði evrópskt sambandsríki. Ég fjallaði einnig um þá staðreynd að Evrópuhreyfingin hér á landi væri aðili að samtökunum líkt og fyrri hreyfingar hérlendra Evrópusambandssinna. Með öðrum orðum væri ljóst að Evrópuhreyfingin væri samtök íslenzkra sambandsríkisinna.

Velta má fyrir sér þeirri spurningu hvers vegna Evrópuhreyfingin og fyrri hreyfingar Evrópusambandssinna hér á landi, svo sem Já Ísland og Evrópusamtökin, hafi ákveðið að gefa þann pólitíska höggstað á sér að ganga formlega til liðs við samtök evrópskra sambandsríkissinna? Þó þau hafi sjálf ekki vakið athygli á því, skiljanlega. Hins vegar kemur fram á vef regnhlífarsamtakanna að Evrópuhreyfingin sé á meðal aðildarfélaga þeirra. Líklegasta skýringin verður að teljast fjármagn.

Háar fjárhæðir hafa þannig runnið frá Evrópusambandinu til European Movement International í gegnum tíðina. Stórum hluta þess fjármagns hefur síðan verið beint áfram til aðildarfélaga regnhlífarsamtakanna í þvi skyni að styðja við starfsemi þeirra og pólitísk markmið heimafyrir. Fjármunir renna einnig í gegnum regnhlífarsamtökin til aðildarfélaganna vegna tiltekinna verkefna á vegum sambandsins og herferða á vegum þeirra sem samræmast markmiðum þess.

Telja verður ólíklegt annað en að hluti af áðurnefndu fjármagni, sem rennur frá Evrópusambandinu til European Movement International, skili sér hingað til lands. Eins og áður segir verður það að teljast líklegasta skýringin á því að Evrópuhreyfingin skuli hafa ákveðið að ganga fyrir opnum tjöldum til liðs við samtök evrópskra sambandsríkissinna. Formleg aðild að þeim er enda forsenda þess að hægt sé að fá aðgang að umræddu fjármagni úr sjóðum sambandsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)