„Einhliða ákvörðun að skjóta sig í fótinn“

„Brexit er síðan önnur kreppa sem kemur til… bara… já, má segja að Bretar hafi tekið um það einhliða ákvörðun að skjóta sig í fótinn með þjóðaratkvæðagreiðslu, sem forsætisráðherra landsins hafði lagt til til þess að leysa vanda innan Íhaldsflokksins sem hann veitti forystu.“ Þetta sagði Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, meðal annars í fyrirlestri sem hann flutti nýverið á námskeiðinu Efnahagssamruni Evrópu. Vísaði hann þar til ákvörðunar brezkra kjósenda að segja skilið við Evrópusambandið í þjóðaratkvæði 23. júní árið 2016.

Málflutningur Magnúsar í fyrirlestrinum, sem ekki fór fram í staðnámi heldur fólst í upptöku sem hann setti á netið fyrir nemendur í fjarnámi og vart getur talizt annað en rammpólitískur, þarf ef til vill ekki að koma á óvart í ljósi þess að hann er formaður Evrópuhreyfingarinnar, sem berst fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið, sem og fyrrverandi varaþingmaður Samfylkingarinnar. Fyrir vikið er hann skiljanlega lítt spenntur fyrir því að ríki yfirgefi sambandið líkt og Bretland gerði. Þá má geta þess að Magnús hlaut nýverið svonefndan Jean Monnet-styrk frá Evrópusambandinu.

Hvað Monnet varðar var hann mikill hvatamaður þess að til yrði evrópskt sambandsríki en í endurminningum sínum talar hann beinlínis um Bandaríki Evrópu í þeim efnum. Frá upphafi samrunaþróunarinnar innan Evrópusambandsins og forvera þess hefur sambandsríki verið lokamarkmið hennar. Til dæmis var rætt um það í Schuman-yfirlýsingunni árið 1950 sem markaði upphaf samrunans. Þá má geta þess að Evrópuhreyfingin er aðili að regnhlífarsamtökunum European Movement International sem hefur haft það meginmarkmið frá stofnun þeirra að til verði evrópskt sambandsríki.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Tower Bridge í London, höfuðborg Bretlands. Eigandi: Luxbao)