Miðstjórnarmönnum í Sjálfstæðisflokknum brugðið

„Mér, sem formanni Samtaka eldri sjálfstæðismanna (SES) og stjórnarmanni í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, var brugðið við lestur fregna um að fram hafi komið tillaga frá málefnanefndum Sjálfstæðisflokksins til miðstjórnar um að fresta ætti landsfundi, sem miðstjórn flokksins hafði ákveðið að halda í febrúar nk,“ segir Bessí Jóhannsdóttir á Facebook-síðu sinni í dag. Tilefnið eru frétt Vísis þess efnis að til alvarlegrar skoðunar sé að fresta landsfundi flokksins sem fyrirhugaður er um mánaðarmótin febrúar-marz með skírskotun til hugsanlegrar slæmrar færðar og veðurs.

„Það er kaldhæðnislegt að menn beiti nú veðrinu, sem aldrei hægt er að treysta á, sem rökum fyrir því að fresta fundinum. Ekki síst í ljósi nýafstaðinna kosninga, sem haldnar voru í lok nóvember þegar að veðrið er yfirleitt ekki gott, eins og sýndi sig raunar í kosningunum. Þá var sá möguleiki fyrir hendi að fresta þyrfti talningu í alþingiskosningunum eins og frægt er orðið. Að mínu mati er tíminn einmitt núna fyrir sjálfstæðismenn að koma saman til að gera upp kosningarnar og horfa til framtíðar. Látum veðrið ekki stoppa okkur,“ segir Bessí, sem verið hefur virk í starfi flokksins í áratugi, enn fremur.

Formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, Albert Guðmundsson, sem einnig á sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins deilir færslu Bessíar á Facebook-síðu sinni í kvöld og tekur undir orð hennar. Telur hann ástæðulaust að fresta landsfundinum: „Nú á ég sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, sem formaður Varðar. Tillaga um að fresta landsfundi hefur ekki borist miðstjórnarmönnum. Sjálfur sé ég enga ástæðu til þess að fresta þegar frestuðum landsfundi. Mikilvægt er að sjálfstæðismenn komi saman enda ástæða fyrir flokkinn að kjarna sig og horfa til framtíðar.“

Fram kemur í frétt Vísis að formenn málefnanefnda Sjálfstæðisflokksins hafi fundað fyrr í mánuðinum þar sem meðal annars hafi verið rætt um það hvort fresta ætti landsfundi flokksins á þeim forsendum að allra veðra væri von um mánaðarmótin febrúar-marz. Hins vegar er þess réttilega getið í fréttinni að landsfundur hafi áður verið haldinn um svipað leyti án þess að talin hafi verið ástæða til frestunar af þeim sökum. Síðast árið 2018 þegar fundurinn fór fram um miðjan marz. Þá hafa landsfundir síðan farið fram seint að hausti þegar einnig má búast við slæmu veðri og færð.

Hlutverk málefnanefnda Sjálfstæðisflokksins samkvæmt skipulagsreglum flokksins er fyrst og fremst að „hafa umsjón með og skipuleggja málefnastarf Sjálfstæðisflokksins, fjalla um afmörkuð málefni og skulu skila álitsgerðum sínum og tillögum til landsfundar, flokkráðs og/eða stjórnar flokksráðs. Málefnanefndir undirbúa einnig drög að ályktunum fyrir landsfundi og alþingiskosningar og leggja fyrir miðstjórn.“ Hlutverk þeirra er ekki að hlutast til um það hvenær landsfundir eru haldnir heldur miðstjórnar flokksins. Það er ekki einu sinni nefndanna að gera tillögur að breyttum fundartíma.

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, var spurður að því í samtali við mbl.is 6. desember, það er að segja eftir þingkosningarnar, hvort timasetning landsfundarins héldi og svaraði því játandi: „Já, það var búið að fast­setja hann í lok fe­brú­ar, byrj­un mars.“ Heimildir Vísis herma að málið snúist í raun fyrst og fremst um mögulegt brotthvarf Bjarna úr stóli formanns flokksins og hver verði arftaki hans sem vitanlega er talsvert líklegri skýring. Formönnum málefnanefndanna er margt til lista lagt. Ólíklegt er þó að eitt af því sé að spá fyrir um veðrið eftir rúma tvo mánuði eða yfir höfuð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)