„Varla að maður geti trúað þessu“

„Það er varla að maður geti trúað þessu. Er málum nú svo komið hér á landi að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands séu tilbúnir að styðja lagasetningu á Alþingi, sem þeir segjast telja að fari í bága við stjórnarskrána?“ spurði Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi dómari við Hæstarétt, á Facebook-síðu sinni í gær.

Tilefnið var ummæli Eyjólfs Ármannssonar, nýs samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og þingmanns Flokks fólksins, um að hann hafi í hyggju að samþykkja fyrirhugað frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn sem Eyjólfur hefur sagt að brjóti í bága við stjórnarskrá lýðveldisins.


„Mér er nær að halda að aðrir eins þverbrestir hafi varla sést hjá íslenskum stjórnmálamönnum fyrr, allavega ekki hjá ráðherrum í ríkisstjórninni,“ sagði Jón Steinar enn fremur. Um ráðherra giltu lög um ráðherraábyrgð og enginn vafi væri á því að þeim bæri að virða stjórnarskrána. Hvort sem málið heyrði undir þá eða aðra ráðherra.

Fram kemur til að mynda í c. lið 8. greinar laganna um ráðherraábyrgð að það varði meðal annars ábyrgð ráðherra ef hann „framkvæmir sjálfur, fyrirskipar framkvæmd á eða lætur viðgangast að framkvæmt sé nokkuð það, er fer í bága við stjórnarskrá lýðveldisins…“ Jón Steinar velti því upp hvort reyna kynni á ráðherraábyrgð Eyjólfs.

Hinn nýi ráðherra hefur borið það fyrir sig að það sé ekki hans að skera úr um það hvort eitthvað standist stjórnarskrána heldur dómstóla. Hins vegar sé það hans mat sem lögfræðings að málið fari gegn henni. Með öðrum orðum sannfæring hans en í stjórnarskránni er einnig kveðið er á um það að þingmenn skuli fylgja sannfæringu sinni.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarskrá lýðveldisins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)