Kosið verður til norska Stórþingsins á mánudaginn. Fróðlegt er að skoða fylgi stjórnmálaflokkanna miðað við niðurstöður síðustu skoðanakannana. Hefðin í Noregi er að mynduð sé annað hvort ríkisstjórn til hægri eða vinstri og skiptast flokkarnir í sitt hvora fylkinguna. Venjulega undir forystu Hægriflokksins eða Verkamannaflokksins sem sögulega séð hafa verið stærstu flokkarnir. Miðað við síðustu kannanir fær vinstrifylkingin rúmlega 51% en hægrifylkingin tæp 46%.
Verkamannaflokkurinn nýtur mests fylgis eða um 27%, Framfaraflokkurinn kemur næstur með um 21% og Hægriflokkurinn með um 14%. Þá koma Græningjar, Rauðliðar og Sósíalíski vinstriflokkurinn með rúm 6%, Miðflokkurinn með tæp 6%, Kristilegi þjóðarflokkurinn með 4,5% og Frjálslyndi flokkurinn með 4,4%. Verkamannaflokkurinn er að mælast með svipað fylgi og í síðustu kosningum en Hægriflokkurinn fékk þá hins vegar 25% og Framfaraflokkurinn rúm 15%.
Talsvert hefur verið rætt um það hvort tekizt yrði á um inngöngu í Evrópusambandið í kosningabaráttunni og hefur málið vissulega verið rætt. Hins vegar hafnaði landsfundur Verkamannaflokksins sem fram fór í apríl tillögu um að þjóðaratkvæði færi fram í Noregi með hliðstæðum hætti og hérlend stjórnvöld hafa boðað. Hægriflokkurinn samþykkti hins vegar slíka tillögu á sínum landsfundi í maí þó leiðtogi hans, Erna Solberg, hafi lýst sig andsnúna því eftir landsfundinn.
Hins vegar er ljóst að áherzla Hægriflokksins á inngöngu í Evrópusambandið hefur ekki aukið á fylgi flokksins sem verið hefur lengi í frjálsu falli. Framfaraflokkurinn hefur mælst með meira fylgi en hann frá því í byrjun síðasta árs. Samanlagt hafa flokkar hlynntir því að málið verði sett á dagskrá um fjórðung fylgis en flokkar andvígir því um 75%. Spái kannanir rétt fyrir um niðurstöður kosninganna er ljóst að mikill meirihluti þingmanna verður ekki á þeim buxunum.
Hvað varðar afstöðu almennings í Noregi hafa allar skoðanakannanir þar í landi undanfarin 20 ár sýnt fleiri andvíga inngöngu í Evrópusambandið en hlynnta. Fátt ef eitthvað bendir þannig til þess að Norðmenn séu á leið í sambandið þrátt fyrir tíðar fullyrðingar um annað í röðum íslenzkra Evrópusambandssinna. Jafnvel leiðtogi samtaka norskra Evrópusambandssinna, Heidi Nordby Lunde, hefur lýst þeirri skoðun sinni að sú verði ekki raunin í fyrirsjáanlegri framtíð.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Sylvi Listhaug, leiðtogi norska Framfaraflokksins. Eigandi: Kilian Munch/Offshore Norge – Attribution 2.0 Generic)

