Við Íslendingar höfum ítrekað orðið fyrir því í gegnum tíðina að Evrópusambandið hefur brotið gegn EES-samningnum. Hins vegar gerir samningurinn ekki ráð fyrir því að Ísland og hin EFTA/EES-ríkin, Noregur og Liechtenstein, geti leitað réttar sína fyrir dómstólum brjóti sambandið gegn honum. Einungis að ríkin þrjú geti brotið gegn samningnum.
Til að mynda braut Evrópusambandið gegn EES-samningnum í Icesave-málinu í kjölfar bankahrunsins haustið 2008. Þannig reyndi sambandið að koma skuldbindingum Landsbanka Íslands, vegna innistæðna í Icesave-netbankanum í Bretlandi og Hollandi sem var í eigu bankans, á herðar okkar Íslendinga með þeim rökum að ríkisábyrgð væri á þeim.
Hérlend stjórnvöld vildu upphaflega að skorið yrði úr málinu fyrir dómstólum en Evrópusambandið hafnaði því og vildi leysa það með pólitískum hætti. Ástæðan var einföld. Þágildandi tilskipun sambandsins um innistæðutryggingar bannaði ríkisábyrgð. Þess vegna þurfti að fá fram samþykki íslenzkra stjórnvalda fyrir hinni meintu ríkisábyrgð.
Málinu var tvisvar vísað í þjóðaratkvæði af þáverandi forseta lýðveldisins, Ólafi Ragnari Grímssyni, og var samningum við brezk og hollenzk stjórnvöld studd af Evrópusambandinu, sem færa áttu ábyrg málsins alfarið á okkur Íslendinga, hafnað í báðum tilfellum. Í kjölfarið fór málið fyrir EFTA-dómstólinn og stefndi sambandið sér inn í það gegn okkur.
Kveðinn var upp úrskurður í EFTA-dómstólnum í lok janúar 2013 og var Ísland sýknað. Þáverandi forseti dómstólsins, Carl Baudenbacher, sagði síðar að dómstóll Evrópusambandsins hefði líklega dæmt okkur í óhag. Dómstóllinn er enda pólitískur. Svo vel vildi hins vegar til að ekki var til staðar fordæmi hjá honum sem EFTA-dómstóllinn þurfti að fylgja.
Til að mynda ætlaði Evrópusambandið sömuleiðis að setja á útflutningabann á læknisvörum til EFTA/EES-ríkjanna árið 2020 í kórónuveirufaraldrinum sem hefði verið þvert á EES-samninginn og áherzlu hans á frjálst flæði varnings. Þvi var mótmælt af hálfu ríkjanna þriggja og féllst sambandið að lokum á það að falla frá banninu. Fleiri dæmi mætti nefna.
Við stöndum nú frammi fyrir enn einu málinu þar sem Evrópusambandið hefur hótað því að leggja verndartolla á Ísland og Noreg þvert á EES-samninginn. Hefur sambandið vísað til varúðarráðstafana samningsins sem hugsaðar eru til að bregðast við neyðarástandi sem ekki er raunin í þessu tilfelli og hefur þannig verið skapað hættulegt fordæmi.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

