Støre: Innganga í ESB ekki á dagskrá

Haft var eftir Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og leiðtoga Verkamannaflokksins, á fréttavef Ríkisútvarpsins fyrr í dag að innganga í Evrópusambandið væri ekki á dagskrá af hálfu norskra jafnaðarmanna. Kosið er í dag til norska Stórþingsins en fram kemur í fréttinni að málið hafi ekki verið eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.


„Við þurfum nú að beina orkunni að því að standa vörð um norska hagsmuni. Ekki að eyða henni í langt, krefjandi umsóknarferli [að Evrópusambandinu] sem hætta er á að sundri okkur,“ sagði Støre, í ræðu sinni á landsfundi Verkamannaflokksins í apríl síðastliðnum en á fundinum var hafnað tillögu að ályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.

„Við erfiðar aðstæður vil ég frekar halda Noregi sameinuðum en setja af stað ný átök með eða á móti [inngöngu í sambandið],“ sagði Støre enn fremur í ræðunni. Orku Norðmanna væri betur varið í það að verja hagsmuni Noregs en langt, krefjandi og sundrandi umsóknarferli. „Þetta er mitt mat þó ég sé hlynntur inngöngu í Evrópusambandið.“

Hefðin í Noregi er að mynduð sé annað hvort miðjuhægri- eða miðjuvinstristjórn og skiptast flokkarnir í sitt hvora fylkinguna. Venjulega undir forystu Hægriflokksins eða Verkamannaflokksins sem sögulega séð hafa verið stærstu flokkarnir. Miðað við síðustu skoðanakannanir fær miðjuvinstrifylkingin rúmlega 51% en miðjuhægrifylkingin rúm 44%.

Talið er líklegast að Støre verði áfram forsætisráðherra. Þá í samstarfi við aðra flokka til vinstri með einum eða öðrum hætti en flestir þeirra hafna inngöngu í Evrópusambandið. Miðað við kannanir fá flokkar andvígir því að setja inngöngu í sambandið á dagskrá með þjóðaratkvæði líkt og hér á landi 128 þingmenn af 169 eða tæplega 76% þingsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)