Felur ekki í sér pólitíska stefnubreytingu

„Hvort sem fólki líkar það betur eða verr þá eru hvalveiðar heimilar á Íslandi lögum samkvæmt. Því verður ekki breytt nema með því að breyta núgildandi lögum. Það hefur ekki verið gert,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni vegna ákvörðunar Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra og matvælaráðherra, um að gefa út hvalveiðileyfi til fimm ára til fyrirtækjanna Hvals hf. og Tjald­tanga ehf.

Vel sé hægt að virða sjónarmið þeirra sem séu andvígir hvalveiðum. „Á sama tíma er sjálfsagt að gera kröfu til þess að gagnrýni þeirra sé sanngjörn og taki mið af þeim lögum sem gilda í landinu,“ segir Sigurður Kári enn fremur. Hann segir þá sem gagnrýni leyfisveitinguna þurfa að svara þeirri spurningu hvort ráðherra geti hafnað því að gefa út leyfi sem sótt hafi verið um ef öllum lagaskilyrðum fyrir veitingu leyfisins hafi verið fullnægt. „Svarið við þeirri spurning er augljóslega nei.“

Fyrir vikið verði ráðherra að framfylgja lögunum eins og þau séu hverju sinni sem gildi ekki einungis um hvalveiðileyfi heldur öll önnur leyfi sem stjórnvöld veiti. „Annað væri valdníðsla og myndi mögulega baka íslenska ríkinu bótaskyldu. Og það sem meira er þá hefur ráðherra heldur engar heimildir samkvæmt lögum til þess að tefja útgáfu slíkra leyfa eða bíða með hana. Sú staðreynd að nú sitji starfsstjórn breytir engu í þessum efnum.“ Ráðherrann sé einungis að fara að lögum.

Með útgáfu hvalveiðileyfisins væri ljóslega ekki um að ræða neina pólitíska stefnubreytingu. „Í því sambandi má einfaldlega benda á að Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir gáfu báðar út hvalveiðileyfi á grundvelli núgildandi laga meðan þær voru matvælaráðherrar í fráfarandi ríkisstjórn. Gagnrýni sem byggir á því hvernig fólk vill að lögin séu er ekki marktæk. Eina viðmiðið sem hægt er að horfa til er hvernig lögin raunverulega eru.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)