Mörgum kom nokkuð spánsk fyrir sjónir að ákveðið hefði verið af stjórnarmeirihlutanum að setja frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 við EES-samninginn á dagskrá þingsins strax á fimmtudaginn. Ekki síður að frumvarpið skyldi vera eina málið sem taka ætti fyrir á þingfundinum fyrir utan óundirbúnar fyrirspurnir. Hvers vegna legið hefði svona á að taka málið fyrir og leggja slíka áherzlu á það?
Hins vegar er skýringin á því, að minnsta kosti stór hluti hennar, frekar einföld. Landsþing Viðreisnar fer fram nú um helgina. Forysta flokksins með Þorgerði í broddi fylkingar þurfti að geta haldið andlitinu á landsþinginu í málinu, eða reyna það, eftir að hafa mistekizt að koma frumvarpinu í gegn á síðasta þingi. Tímasetningin þingfundarins er ekki tilviljun. Forystan taldi sig þurfa að geta bent á það að hún væri að gera eitthvað í málinu eftir sneypuförina sem hún fór síðast.
Fundur þingsins á fimmtudaginn snerist þannig ekki sízt um innanflokksmál Viðreisnar. Engu að síður liggur fyrir að Þorgerður hyggst með stuðningi samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórninni keyra málið eins hratt í gegnum þingið og hægt verður. Sem fyrr með sem allra minnstri umræðu. Einkum í röðum almennings. Miðað við skoðanakönnun sem Prósent gerði fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru enda fleiri andvígir frumvarpinu en hlynntir.
Vert er annars að árétta það í lokin um hvað frumvarp Þorgerðar um bókun 35 snýst. Verði frumvarpið að lögum verður til ný forgangsregla í íslenzkum rétti þess efnis að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar löggjöf sem Alþingi setur og á sér innlendan uppruna. Af þeirri einu ástæðu að umrætt regluverk kemur frá sambandinu. Regluverkið frá Evrópusambandinu verður þar með í raun að eins konar yfirlöggjöf hérlendis.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Mfa.gov.ua – Attribution 4.0 International)
