„Ég held að þessi Evrópuumræða eigi eftir að verða alveg svakalega erfið,“ sagði Egill Helgason fjölmiðlamaður á Sprengisandi á Bylgjunni í gær þar sem hann ræddi um stöðu ríkisstjórnarinnar. Rifjaði hann upp þegar þáverandi ríkisstjórn hefði sótt um inngöngu í Evrópusambandið árið 2009 að hann hefði í viðtali við stærstu sjónvarpsstöð Frakkland sagt að Ísland myndi ekki ganga í sambandið. Það myndi ekki takast. Frönsku fréttamennirnir hefðu orðið mjög hissa.
„Ég endurtek það núna: Ísland er ekki á leiðinni inn í Evrópusambandið,“ sagði Egill. „Ég held bara að það sé allt of erfið brekka. Þó ég sé frekar Evrópusinnaður sjálfur.“ Rifjaði Páll Magnússon, stjórnandi þáttarins, þá upp að Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefði sagði sagt fyrir þingkosningarnar að hún vildi ekki setja Evrópusambandið á dagskrá á þessu kjörtímabili. Viðreisn hefði hins vegar komið því í gegn.
Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður var ásamt Agli gestur þáttarins og sagðist aðspurð að Evrópusambandsmálið myndi ekki endilega varpa skugga á öll önnur mál ríkisstjórnarinnar eins og Páll nefndi og skírskotaði þar til ummæla Kristrúnar fyrir kosningar. „En þetta mun verða mjög, mjög áberandi og þetta mun verða rosalegt, þetta verður slagur.“ Egill tók undir þetta. „Ég held að menn hefðu bara átt að bíða átekta og efla frekar samstarfið í gegnum EES í bili.“
Skömmu eftir þingkosningarnar í lok nóvember hafði Egill einnig uppi varnaðarorð í þessum efnum á Facebook-síðu sinni. „Deilur um Evrópu yrðu erfiðar og tímafrekar, betra að einbeita sér að heilbrigðis-, velferðar- og húsnæðismálum þar sem skórinn kreppir verulega. Ráðlagði hann Samfylkingunni, Viðreisn og Flokki fólksins, sem þá voru í viðræðum um myndun ríkisstjórnar, að „láta Evrópumálin alveg vera og sætta sig við ríkjandi ástand í þeim.“
Vísaði Egill til mislukkaðrar umsóknar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um inngöngu í Evrópusambandið sumarið 2009. Undir orð hans tók meðal annars Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður: „Eins einarður stuðningsmaður og ég er við aðild að ESB, þá held að þetta sé hin kalda og rökrétta niðurstaða. Eins og er brenna önnur mál meira á samfélaginu og ESB kyndir bara upp ófriðarbál sem við höfum ekki ráð á né tíma í núna.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

