Spurður að því á landsþingi Viðreisnar fyrir rúmri viku hvaða ráðleggingar hann hefði fyrir íslenzka Evrópusambandssinna í umræðunni um það hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið sagði Guy Verhofstadt, forseti European Movement International og heiðursgestur þingsins, að þeir þyrftu að verja sambandið eins og það legði sig og hugmyndina að baki þess. „Að verja allt framtakið og hugmyndina sem slíka,“ sagði hann þannig aðspurður af Aðalsteini Leifssyni, aðstoðarmanni Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns flokksins.
Með öðrum orðum ættu hérlendir Evrópusambandssinnar að mati Verhofstadts að tala fyrir inngöngu í Evrópusambandið eins og það væri. Ekki á þeim forsendum að fá þyrfti alls kyns frávik frá löggjöf þess og stefnum, undanþágur og sérlausnir. Til þessa hafa þeir gjarnan haldið því fram að hægt væri að semja sig frá helztu ókostum sambandsins og að sækja þyrfti um inngöngu til þess að „sjá hvað væri í boði“ og „kíkja í pakkann“ þrátt fyrir að forystumenn þess hafi ítrekað sagt að slíkt væri ekki í boði. Fróðlegt verður að sjá hvort Viðreisnarfólk muni fylgja þessum ráðleggingum.
„Vitanlega er Evrópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og leiðtogi Venstre, systurflokks Viðreisnar sem var mikill stuðningsmaður þess að Ísland gengi í sambandið, í viðtali við mbl.is í marz 2017. Spurður út í þann málflutning hérlendra Evrópusambandssinna að sækja þyrfti um inngöngu til þess að „kíkja í pakkann“ hló hann og sagði: „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

