„Við skoðum þetta þegar við komum heim eftir nokkra daga.“ Þetta voru efnislega skilaboðin frá þeim Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar, þegar óskað var eftir því að þjóðaröryggisráð landsins kæmi saman vegna lokunar stærstu flugvalla Danmerkur og Noregs eftir að óþekktir drónar sáust yfir þeim en þær stöllur eru staddar úti í New York.
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, kallaði eftir því á Alþingi síðdegis í gær að Inga Sæland, sem starfandi forsætisráðherra, kallaði saman þjóðaröryggisráðið en hún var ekki reiðubúin til þess. Þorgerður Katrín sagði í kjölfarið við mbl.is að boðaður yrði fundur í ráðinu þegar þær Kristrún kæmu heim. „Hvort við bíðum í nokkra daga til eða frá, það er ekki stóra málið.“ Nokkrir dagar geta einmitt skipt miklu þegar öryggismál eru annars vegar.
Málið verður vart skilið á annan veg en sem vantraust Kristrúnar og Þorgerðar á Ingu Sæland þegar kemur að öryggismálum þjóðarinnar, vantraust Ingu á sér sjálfri eða hvort tveggja. Það er ekki nóg að slá ítrekað um sig með digurbarkalegum yfirlýsingum þegar kemur að öryggis- og varnarmálum eins og einkum utanríkisráðherra hefur stundað heldur verður að vera eitthvað raunverulegt á bak við þær. Það sést bezt þegar á reynir. Eins og gerðist í gær.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Bandaríski sjóherinn)

