Heiðursgesturinn á landsþingi Viðreisnar sem fram fór nýverið, Guy Verhofstadt, forseti European Movement International, fékk góðar viðtökur landsþingsfulltrúa flokksins. Eftir að hann flutti ræðu á landsþinginu og svaraði spurningum hlaut hann standandi lófatak fulltrúanna sem ekki væri í frásögu færandi ef ekki væri fyrir innihald ræðunnar.
Verhofstadt kallaði þannig til að mynda eftir því að Evrópusambandið yrði ekki aðeins að sambandsríki, eins og hann hefur margoft gert í gegnum tíðina, heldur að heimsveldi. Enn fremur sagði hann framkvæmdastjórn sambandsins í raun ríkisstjórn þess. Þá ráðlagði hann Viðreisnarfólki aðspurður að verja Evrópusambandið eins og það legði sig.
Með öðrum orðum var ráðlegging Verhofstadts sú að Viðreisn ætti ekki að beita sér fyrir inngöngu í Evrópusambandið á þeim forsendum að fá fram einhver frávik frá því sem fælist í því að ganga þar inn heldur að tala fyrir sambandinu eins og það væri. Fyrir þessu sáu landsþingsfulltrúarnir sem sagt ekki aðeins ástæðu til að klappa heldur rísa á fætur.
Hins vegar er ekki nóg með að hérlendir Evrópusambandssinnar hafi fagnað ræðu Verhofstadts heldur hefur sú einnig verið raunin með ýmis erlend skoðanasystkin þeirra. Ræðunni hefur þannig verið deilt á samfélagsmiðlum og tekið undir með honum að Evrópusambandið verði að verða endanlega að sambandsríki svo tryggja megi framtíð þess.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Standandi lófatak landsþingsfulltrúa Viðreisnar. Eigandi: Skjáskot)

