Margir hafa komið að máli við mig undanfarna daga vegna þess hvernig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, kaus að halda á málum hvað mig varðar síðastliðinn mánudag þegar blaðamaður mbl.is innti hana eftir viðbrögðum við skrifum mínum á Stjórnmálin.is varðandi val flokksins á heiðursgesti á landsþing hans. Þar sagðist hún ekki ætla að eltast við orð mín en bætti síðan við fullyrðingu þess efnis að ég fengi greitt fyrir skrifin.
Frá því er þó skemmst að segja að ég hef aldrei fengið krónu greidda fyrir pistlaskrif mín á Stjórnmálin.is enda færði Þorgerður auðvitað engin rök fyrir máli sínu. Hins vegar voru þessi viðbrögð hennar mjög í anda þess sem ég átti von á og gerði raunar ráð fyrir enda í samræmi við margt annað úr þeirri átt. Slík framganga er auðvitað til marks um algert rökþrot. Ekki þarf jú að grípa til slíkra óyndisúrræða ef málefnalegum rökum er fyrir að fara. Sú var hins vegar ljóslega ekki raunin.
Ég ætlaði ekki að tjá mig meira um málið umfram það sem kom fram í viðbrögðum mínum við ummælum Þorgerðar samdægurs á mbl.is. Taldi ekki meira um það að segja. Hins vegar hefur mér verið bent á það að þetta mál snúizt ekki eingöngu um mína persónu heldur hafi það miklu víðtækari skírskotun. Það snúist um það með hvaða hætti valdamenn kjósi að koma fram við almenna borgara hér á landi. Sem er auðvitað alveg rétt. Ég hafði satt að segja ekki hugsað út í það.
„Ég veit að þú kippir þér ekkert upp við þetta og hefur bara gaman að þessu enda fyrir löngu kominn með pólitískan skráp fyrir öllu svona. Það á hins vegar ekki við um alla. Hvaða skilaboð er ráðherrann að senda öðrum með þessari framkomu sem ekki eru í þinni stöðu? Að þeim sé hollast að halda sig á mottunni og gagnrýna ekki ráðamenn, þá geti þeir átt von á því að vegið verði að þeim persónulega og þeir sakaðir um eitthvað sem ekkert er til í og engin rök eru færð fyrir?“
Með þessum hætti komst ágætur félagi minn að orði sem hefur mikla reynslu af opinberri stjórnsýslu. Þetta er auðvitað rétt. Mín fyrstu viðbrögð voru að hlægja að þessu. Ekki sízt þar sem Þorgerður var með því að gefa á sér höggstað og undirstrika það sem fyrr segir að hún treysti sér ljóslega ekki til þess að svara mér málefnalega. Mér þóttu þessar ábendingar hins vegar góðar og gildar og að þær ættu erindi við fleiri en einungis mig. Þetta varðar auðvitað okkur sem þjóðfélag.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

