Hefur ekki haldið landsfund í fimm ár

Flokkur fólksins hefur ekki haldið hefðbundinn landsfund síðan í september 2018. Fundurinn sem þá var haldinn var fyrsti landsfundur flokksins en árið eftir var haldinn aukalandsfundur. Síðan hafa slíkir fundir ekki verið haldnir en samkvæmt samþykktum Flokks fólksins ber að boða til landsfundar að jafnaði þriðja hvert ár. Kórónuveirufaraldurinn hefur væntanlega haft sín áhrif en fátt ef eitthvað hefði þó átt að vera því til fyrirstöðu að halda fundinn allavega á síðasta ári eða fyrr á þessu. Til stóð að halda landsfund 2. nóvember á þessu ári en honum var hins vegar frestað vegna kosninganna.

Formannskjör fór ekki fram á aukalandsfundi Flokks fólksins 2019 en á slíkum fundi „er heimilt að hafa öll sömu mál á dagskrá og á hefðbundnum landsfundi en ekki skylt“ samkvæmt reglum flokksins. Með öðrum orðum hefur ekki komið til kosningar formanns innan Flokks fólksins undanfarin sex ár. Inga Sæland hefur fyrir vikið verið formaður flokksins í sex ár án þess að þurfa að leggja störf sín í dóm flokksmanna þó gera eigi það að jafnaði þriðja hvert ár. Stundum hefur verið sagt, bæði í gríni og alvöru, að Flokkur fólksins væri í eikaeigu Ingu og verður að teljast ólíklegt að þetta dragi úr í þeim efnum.

Málið var til umfjöllunar á Heimildinni 5. desember og Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gerir það að umtalsefni á vefsíðu sinni í dag. Björn tengir málið við umræður í Sjálfstæðisflokknum um það hvort fresta eigi boðuðum landsfundi flokksins um mánaðarmótin febrúar-marz eða ekki en helztu rökin sem færð hafa verið fram fyrir því að rétt væri að gera það er að veðurfar gæti verið óheppilegt. Þess í stað vilja þeir, sem hvað mest hafa kallað eftir frestun fundarins, að hann verði haldinn næsta haust en eins og allir vita er íslenzka veðrið iðulega með allra bezta móti á haustin.

Talsvert hefur verið gantast með þá röksemd að veðrið væri heppilegra á haustin en um mánaðarmótin febrúar-marz sem og því að menn telji sig geta sagt eitthvað til um veðurfarið eftir tvo mánuði. Þá hefur verið bent á það að landsfundir Sjálfstæðisflokksins hafi iðulega verið haldnir um það leyti án þess að það hafi þótt vandamál eða komið niður á mætingu á fundina. Tilraunir til þess að stilla málinu upp með þeim hætti að einungis höfuðborgarbúar vildu halda sig við boðaðan fundartíma hafa verið hraktar af einstaklingum á vegum trúnaðarmanna flokksins á landsbyggðinni.

„Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn á næsta ári og ákvarðanir um tímasetningu hans eru í höndum miðstjórnar flokksins en ekki þeirra sem hrópa hæst utan hennar og minna helst á Ingu Sæland sem forðast hefur landsfundi,“ segir Björn í lok greinar sinnar. Miðað við efni hennar er hann greinilega í hópi frestunarsinna. Með orðum sínum og samlíkingu við Ingu Sæland er hann þó greinilega að vísa til annarra í þeim hópi sem einmitt vilja fresta landsfundinum, helzt fram á haust þegar þrjú ár verða liðin frá síðasta fundi, í stað þess að halda sig einfaldlega við þegar ákveðinn fundartíma.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)