Verði frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 við EES-samninginn að lögum verður innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn að „ofurlögum“ hér á landi í tómarúmi á milli annarra almennra laga og stjórnarskrár lýðveldisins. Þetta kom fram í aðsendri grein Stefáns Más Stefánssonar, lagaprófessors emeritus við Háskóla Íslands og helzta sérfræðings landsins í Evrópurétti, í Morgunblaðinu 15. október. Varaði hann við því að álitamál væri fyrir vikið hvort frumvarpið stæðist stjórnarskrána.
„Í þessari stöðu er í fyrsta lagi álitamál hvort löggjafinn geti eftir gildandi stjórnarskrá búið til „ofurlög“ sem gangi fyrir öllum öðrum lögum á víðtæku sviði, jafnt eldri sem yngri og án nokkurs tillits til almennra reglna um skýringu réttarheimilda, og sett þau almennu lög stalli ofar en öll önnur almenn lög, í einhverju tómarúmi á milli almennra laga og stjórnarskrár. Í öðru lagi er álitamál hvort EES-regla sem ryður burt ósamrýmanlegu ákvæði íslenzkrar löggjafar á víðtæku sviði, þar sem fyrirsjáanleiki er oft ekki mikill, standist íslenzkar stjórnskipunarreglur,“ segir Stefán þannig í grein sinni í blaðinu.
Frumvarpið felur í sér að til verði ný forgangsregla sem miðist við það eitt að um sé að ræða regluverk frá Evrópusambandinu. „Forgangsáhrif snúast um lagaáhrif tiltekinna laga gagnvart öðrum gildandi lögum þegar orð þeirra eða merking eru ósamrýmanleg. Í þeirri stöðu gilda þau lög sem teljast hafa forgang en hin lögin víkja og gilda ekki. Ef veita á lögum sem stafa frá erlendu réttarkerfi forgang í umtalsverðum mæli með lagareglum kynni slíkt að fela í sér framsal löggjafarvalds sem væri andstætt fyrirmælum 2. gr. stjórnarskrárinnar. Ekki bætir úr ef reglur um þetta eru ekki skýrar.“
Fleiri virtir lögspekingar hafa varað við því að bókun 35 verði innleidd með þeim hætti sem til stendur með frumvarpinu og þar á meðal Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar. „Staðreyndin er hins vegar sú að ekki var mögulegt að ganga lengra innan þess ramma sem stjórnarskrá Íslands setur. Stjórnarskráin gerir hvorki ráð fyrir því að takmarka megi fullveldi lýðveldisins með framsali löggjafarvalds til alþjóðastofnana né að landslög, sem byggjast á alþjóðlegum skuldbindingum eins og EES-samningnum, geti eingöngu af þeim sökum öðlast ríkari stöðu en önnur almenn löggjöf.“
Með þessum orðum í íslenzkri þýðingu komst Markús að orði í afmælisriti EFTA-dómstólsins árið 2015. Skrifin bera það með sér að sjálfur sé hann hlynntur því að bókun 35 verði innleidd með þeim hætti sem til stendur að gera en telji hins vegar að standa verði þá lögformlega rétt að málum. Með því að breyta fyrst stjórnarskránni. Frumvarpið felur annars í sér fullkomna uppgjöf í málinu. Fari málið fyrir EFTA-dómstólinn er allavega möguleiki á því að niðurstaðan verði Íslandi hagfelld en að öðrum kosti er sá möguleiki að engu gerður. Við höfum einfaldlega engu að tapa en allt að vinna.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kaja Kallas, utanríkisráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)
