Hamas má myrða Palestínumenn

Vígmenn hryðjuverkasamtakanna Hamas hafa að undanförnu nýtt tækifærið í kjölfar þess að ísraelskar hersveitir hafa dregið sig í hlé á Gaza og myrt fjölda Palestínumanna. Hafa vígamennirnir þannig tekið hópa Palestínumanna af lífi á götum úti á dóms og laga. Fólkið hafa samtökin sakað um að hafa unnið með Ísraelsher. Með sama hætti gengu þau fram í valdatíð sinni á svæðinu líkt og lesa má til dæmis um í gögnum Amnesty International og myrtu þá fjölda Palestínumanna.

Meðal annars hafa mannréttindasamtökin fordæmt þá framgöngu Hamas á liðnum árum að nota tækifærið þegar Ísraelsher hefur gert loftárásir á Gaza til þess að myrða Palestínumenn sem hryðjuverkasamtökunum hefur verið í nöp við eða beita þá öðru ofbeldi. Þeir hafa síðan verið sagðir hafa farizt í árásunum. Ásakanir um samstarf við Ísrael hafi gjarnan verið settar fram sem yfirskin. Litlar líkur eru á öðru en að Hamas hafi beitt sömu aðferð í átökunum undanfarin tvö ár.

Mannréttindasamtökin hafa einnig fordæmt ofbeldi Hamas í garð Palestínumanna á Gaza sem mótmælt hafa stjórn þeirra á undanförnum árum. Skipuleggjendur mótmælafunda hafi til að mynda verið handteknir og pyntaðir og öryggissveitir Hamas ráðist á friðsama mótmælendur, blaðamenn og starfsmenn mannréttindasamtaka. Fjöldi Palestínumanna mótmælti Hamas á Gaza á meðan á átökum síðustu tveggja ára stóð sem er nóg til þess að teljast hafa unnið með Ísrael.

Merkilegt nokk hefur ekkert heyrzt frá samtökunum Ísland-Palestína eða öðrum líkt þenkjandi aðilum vegna morða Hamas á Palestínumönnum undanfarið. Reyndar kemur það lítið á óvart enda hafa samtökin ekki beinlínis lagt það í vana sinn að gagnrýna obeldisverk hryðjuverkasamtakanna. Hvorki gagnvart almennum borgurum í Ísrael né á Gaza. Miklu heldur hefur ofbeldið verið réttlætt og jafnvel lýst yfir stuðningi við það. Hamas má ljóslega myrða Palestínumenn.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Vígamenn Hamas. Eigandi: Fars Media Corporation – Attribution 4.0 International)