Vilja Sigurð Inga vegna bókunar 35

Fróðlegt var að sjá stuðningsyfirlýsinguna við Sigurð Inga Jóhannsson sem áframhaldandi formann Framsóknarflokksins sem birtist á Dv.is í gær. Eftir að Fréttablaðið leið undir lok hefur vefurinn verið helzta málgang hérlendra Evrópusambandssinna og þá einkum Viðreisnar í takt við eignarhaldið. Birtingarmynd þeirrar afstöðu hefur einkum verið nafnlausir dálkar vefsins eins og Orðið á götunni sem aðallega einn harður stuðningsmaður inngöngu í Evrópusambandið skrifar.

Tilefni skrifanna var grein eftir Guðna Ágústsson, fyrrverandi formann Framsóknarflokksins og ráðherra, í Morgunblaðinu í gær þar sem hann fjallaði um afleita stöðu flokksins og mikilvægi þess að menn þekktu sinn vitjunartíma í stjórnmálum. Enginn einstaklingur innan stjórnmálaflokks væri stærri en flokkurinn í heild. Höfundur Orðsins á götunni heldur því hins vegar fram að ekkert fararsnið sé á Sigurði Inga og tekst honum afar illa að leyna óskhyggju sinni í þeim efnum.

Stuðningur Dv.is við Sigurð Inga getur ekki beinlínis talizt greiði við hann í ljósi pólitískrar afstöðu vefsins. Engar líkur eru á því að þar á bæ sé áhugi á velgengni Framsóknarflokksins heldur þvert á móti. Stuðningurinn skýrist vafalaust ekki sízt af stuðningi Sigurðar við bókun 35 við EES-samninginn. Andstaða Dv.is við Lilju Alfreðsdóttur sem mögulegs arftaka hans skýrist vafalítið af því að hún hefur þvert á móti hafnað bókuninni og skipað sér í framlínu hérlendra sjálfstæðissinna.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Sigurður Ingi Jóhannsson. Eigandi: Mission of Norway to the EU – Attribution 4.0 International)