Haft er eftir Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, á mbl.is að hann hafi ekki ákveðið hvort hann muni áfram gefa kost á sér sem formaður en landsfundur flokksins er fyrirhugaður dagana 28. febrúar – 2. marz 2025. Boðað var til fundarins áður en slitnaði upp úr ríkisstjórnarsamstarfinu í haust og fyrir vikið jafnvel talið að fundinum yrði frestað en miðað við orð Bjarna mun Sjálfstæðisflokkurinn halda sínu striki.
Spurður hvort tímasetning landsfundarins muni standa svarar Bjarni: „Já, það var búið að fastsetja hann í lok febrúar, byrjun mars.“ Aðspurður hvort hann hafi tekið ákvörðun um að gefa áfram kost á sér í formennskuna segir hann: „Nei. Ég ætla bara bíða með allar yfirlýsingar um þá hluti. Nú bara sjáum við hvernig spilast úr stöðunni í dag,“ og vísar þar til yfirstandandi viðræðna Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins um stjórnarmyndun.
Vert er að hafa í huga að Bjarni talaði á svipuðum nótum í ræðu sinni á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í lok ágúst á þessu ári þar sem hann sagðist ætla að taka ákvörðun um það á næstu mánuðum með sínu fólki hvort hann myndi óska eftir endurkjöri á næsta landsfundi flokksins. Þá sagði hann einnig að hann hefði í hyggju að leiða ríkisstjórnina allt til enda. Hins vegar lá þá ekki fyrir að endirinn yrði einungis einum og hálfum mánuði síðar.
Vangaveltur hafa reglulega verið uppi um hugsanlegt brotthvarf Bjarna úr formannsstóli Sjálfstæðisflokksins en hann hefur verið formaður frá 2009. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og hefur gegnt þeirri stöðu undanfarin sex ár. Mikil og vaxandi umræða hefur verið um það að forystumál flokksins hafi ekki sízt staðið honum fyrir þrifum og að algerrar endurnýjunar sé þörf í forystusveit hans.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
