Merkileg umfjöllun birtist á Dv.is í vikunni þar sem því var haldið fram að aukið fylgi Viðreisnar í nýrri skoðanakönnun Maskínu væri vegna þess að flokkurinn væri „að höfða til kjósenda sem áður kusu Sjálfstæðisflokkinn.“ Á sama tíma var mun meiri fylgisaukning Miðflokksins einungis skýrð með því að landsþing flokksins hefði nýverið farið fram. Ekkert var hins vegar rætt um það hvaðan það fylgi hefði komið. Hins vegar fór landsþing Viðreisnar einnig fram á dögunum.
Miðað við könnunina, sem framkvæmd var dagana 3.-8. og 8.-15. október síðastliðna, mælist fylgi Samfylkingarinnar 29,4%, Viðreisnar 16,1%, Sjálfstæðisflokksins 15,9% og Miðflokksins 13,8%. Samfylkingin tapar 2,5 prósentustigum miðað við þar síðustu könnun Maskínu sem fram fór dagana 4.-9. og 15.-19. september, Viðreisn bætir við sig 1,8 prósentustigum, Sjálfstæðisflokkurinn tapar 2,7 prósentustigum og Miðflokkurinn bætir við sig 4,7 prósentustigum.
Hafi aukið fylgi Viðreisnar komið aðallega frá Sjálfstæðisflokknum má velta fyrir sér hvaðan aukið fylgi Miðflokksins hafi þá komið. Frá Samfylkingunni? Mun líklegra er að fylgisaukning Viðreisnar hafi einkum komið þaðan og Miðflokksins aðallega frá Sjálfstæðisflokknum. Síðast þegar fylgi Miðflokksins jókst umtalsvert á kostnað Sjálfstæðisflokksins var fyrri hluta sumars eftir umfjöllun þingsins um bókun 35. Bókunin var aftur til umræðu í þinginu nýverið, 18. september.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
