Svandís vanmat Sjálfstæðisflokkinn

Formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Svandís Svavarsdóttir, vanmat greinilega þá megnu óánægju sem til staðar var á meðal sjálfstæðismanna með stjórnarsamstarfið við flokk hennar. Hún taldi ljóslega óhætt að ganga sífellt meira á lagið gagnvart Sjálfstæðisflokknum í trausti þess að forysta hans vildi ekki kosningar. Hún mat sennilega Bjarna Benediktsson, formann flokksins, rétt en vanmat hins vegar algerlega einkum og sér í lagi baklandið í honum.

Fyrir liggur að forysta VG var engan veginn undir kosningar búin sem aftur átti klárlega stóran þátt í því að hann þurrkaðist út af þingi. Ljóst er að ákvörðun Bjarna um að taka af skarið og slíta stjórnarsamstarfinu eftir að hafa fundað með þingflokki Sjálfstæðisflokksins og almennum sjálfstæðismönnum hefur verið rétt við þessar aðstæður. Sú ákvörðun kom Svandísi greinilega í opna skjöldu miðað við viðbrögð hennar við henni og vanbúnað VG fyrir kosningar.

Hefði ekki komið til umræddrar framgöngu VG hefði ríkisstjórnin að öllum líkindum setið allavega fram á vor og getað notið þeirrar lækkunar vaxta og verðbólgu sem gert er ráð fyrir að muni eiga sér stað á næstu mánuðum. Þess í stað mun ný ríkisstjórn, hver sem hún annars verður, reyna að eigna sér þá þróun þrátt fyrir þá staðreynd að þróunin var þegar hafin áður en hún tók við völdum. Með öðrum orðum má segja að Svandís hafi lagt allt undir og tapað öllu.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Alþingishúsið og Dómkirkjan. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)