Dagana 24.-25. október sat Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, þing evrópsku regnhlífarsamtakanna ALDE, sem flokkurinn á aðild að, í Brussel. Yfirskrift þingsins var: „Gerum Evrópusambandið að stórveldi á heimsvísu“ (e. Making Europe a global superpower). Kallað var enn fremur eftir því af hálfu þingsins að ríki sambandsins töluðu einum rómi á alþjóðavettvangi. Þá sagði Marie-Agnes Strack-Zimmermann, oddviti samtakanna á þingi þess, þörf á evrópskum her.
Fyrr á þessu ári sendi Valérie Haye, forseti Renew Europe, þingflokks ALDE á þingi Evrópusambandsins, bréf til Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar sambandsins, og António Costa, forseta leiðtogaráðs þess, þar sem fram kom meðal annars að tímabært væri að sambandið yrði að stórveldi og kæmi sér enn fremur upp eigin sjálfstæðri hernaðargetu. Með öðrum orðum eigin her. Þá var einnig kallað eftir inngöngu Íslands og Noregs í Evrópusambandið.
Fram kom meðal annars í ræðu Guy Verhofstadt, forseta European Movement International, á landsþingi Viðreisnar um helgina, þar sem hann var heiðursgestur, að Evrópusambandið þyrfti að verða að heimsveldi (e. empire) en til þessa hefur hann einkum verið þekktur fyrir áherzlu sína á það að til yrði evrópskt sambandsríki. Þá kallaði hann einng eftir því að sambandið fengi eigin her. Var ræðunni fagnað með dynjandi lófataki standandi landsþingsfulltrúa flokksins.
Meðal þeirra sem lýst hafa ánægju sinni með færslu Pawels eru Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og forseti Alþingis, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi formaður Evrópuhreyfingarinnar og núverandi aðstoðarmaður Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra Viðreisnar, og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi sendiherra og guðfaðir flokksins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fánar Evrópusambandsins. Eigandi: Thijs ter Haar – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)

