Miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Gallups hefur Viðreisn tapað tveimur prósentustigum frá þingkosningunum fyrir rúmum mánuði síðan. Fylgi Viðreisnar mælist þannig 13,8% en var 15,8% í kosningunum. Væri kosið núna myndi flokkurinn tapa tveimur þingmönnum samkvæmt könnuninni. Flokkurinn fékk þannig 11 þingmenn kjörna en myndi aðeins fá níu ef kosið væri núna. Þá mælist Sósíalistaflokkurinn með 6%, bætir við sig tveimur prósentustigum og fengi fjóra þingmenn en hefur engan í dag. Fylgi flokkanna tveggja er það eina sem er utan skekkjumarka könnunarinnar.
Hvað veldur þessu fygistapi Viðreisnar í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur varla tekið til starfa og var aðeins mynduð fyrir tæpum tveimur vikum? Það eina sem Viðreisn hefur í raun gert og verið í umræðunni er að knýja það fram að þjóðaratkvæði fari fram síðar á kjörtímabilinu um það hvort sækjast eigi eftir inngöngu í Evrópusambandið. Eftir að hafa aldrei þessu vant forðast eins og heitan eldinn að minnast á sambandið í aðdraganda þingkosninganna. Fylgið var raunar byrjað að tínast af flokknum rétt fyrir kosningarnar meðal annars og ekki sízt eftir að kosningabaráttan fór að snúast meira um málið.
Flokkur fólksins tapar enn fremur hátt í prósentustigi sem myndi kosta hann einn þingmann. Könnun Maskínu, sem birt var á gamlársdag, benti einnig til umtalsverðs fylgistaps flokksins. Það sem helzt getur skýrt það eru ýmis stór mál sem ýmsir þingmenn hans hafa kosið að fórna til þess að komast í ráðherrastóla. Hafa má í huga í þessu sambandi að skoðanakönnun Gallups var gerð að hluta til áður en ríkisstjórnin var formlega mynduð og stjórnarsáttmáli hennar kynntur. Könnun Maskínu var gerð alfarið áður en sáttmálinn lá fyrir. Fróðlegt verður því að sjá niðurstöður næstu kannana.
Hvað aðra flokka varðar mælist fylgi Framsóknarflokksins 6,3% sem myndi kosta hann einn þingmann. Samfylkingin bætir aðeins við sig og sömuleiðis Sjálfstæðisflokkurinn. Hið sama á við Miðflokkinn þó þar muni ekki eins miklu. Hins vegar myndi það ekki hafa áhrif á þingsæti flokkanna. Aðrir flokkar sem, líkt og sósíalistar, náðu ekki inn á þing í kosningunum, þar á meðal Píratar og Vinstrihreyfingin – grænt framboð, eru áfram úti í kuldanum samkvæmt könnuninni. Fylgi þeirra breytist lítið fyrir utan Lýðræðisflokkinn sem fer úr 1% í 1,6%. Mikið vantar þó sem fyrr upp á að hann nái inn á þing.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
