Telur þjóðaratkvæðið illa nauðsyn

Tilgangurinn með fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu sem ríkisstjórnin hefur boðað um það hvort sækjast eigi á nýjan leik eftir inngöngu í Evrópusambandið eða ekki, fyrir utan það meginmarkmið að reyna að koma Íslandi inn í sambandið, er einfaldlega að reyna að komast framhjá þeim veruleika að ekki er þingmeirihluti fyrir málinu á Alþingi. Væri meirihluti þingmanna hlynntur því að sózt yrði aftur eftir því að ganga í Evrópusambandið væri enginn að tala um þjóðaratkvæði í þeim efnum.

Fyrir þingkosningarnar fyrir ári síðan sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, í Spursmálum á mbl.is að þjóðaratkvæði um það hvort sækjast ætti eftir inngöngu í Evrópusambandið væri málamiðlun af hálfu flokksins. „Það er ekki farið beint í aðild­ar­viðræður. Við för­um alltaf í þjóðar­at­kvæðagreiðslu á und­an. Og það er mik­il mála­miðlun af okk­ar hálfu.“ Með öðrum orðum vill Viðreisn þannig ekki þjóðaratkvæðið. Það er aðeins ill nauðsyn.

Viðreisn vonar að verði samþykkt í þjóðaratkvæðinu að sækjast á ný eftir inngöngu í Evrópusambandið muni það setja þrýsting á Alþingi þrátt fyrir að aðeins verði um ráðgefandi atkvæðagreiðslu að ræða sem þingmönnum er ekki skylt að fara eftir enda aðeins bundnir af sannfæringu sinni samkvæmt stjórnarskránni. Þannig verði hægt að komast í kringum þann veruleika að ekki er meirihluti fyrir málinu í þinginu. Ekki einu sinni Viðreisn kaus að leggja áherzlu á það fyrir kosningarnar.

Fyrir því er ástæða. Sumarið 2024 gerði Maskína skoðanakönnun fyrir Evrópuhreyfinguna, sem Jón Steindór Valdismarsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, fór þá fyrir, þar sem kannað var hvaða áhrif afstaða fólks til inngöngu í Evrópusambandið hefði á það hvernig það hyggðist kjósa í næstu þingkosningum, hvort fólk hyggðist kjósa flokk andvígan eða hlynntan inngöngu í sambandið og flokk andvígan eða hlynntan þjóðaratkvæði í þeim efnum. Niðurstöðurnar voru aldrei birtar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Mfa.gov.ua – Attribution 4.0 International)