Vilja frekar að Brexit virki

Miðað við þær skoðanakannanir sem gerðar hafa verið í Bretlandi í tengslum við útgöngu landsins úr Evrópusambandinu (Brexit) má ljóst vera að meirihluti Breta er ekki ósáttur við útgönguna sem slíka heldur hvernig staðið var að henni. Til að mynda sýndi könnun fyrirtækisins Redfield & Wilton í ágúst á síðasta ári fleiri á því að kjósa stjórnmálaflokka sem legðu áherzlu á það að vinna að því að útgangan skilaði tilætluðum árangri en sem vildu ganga aftur í sambandið.

Fram kom enn fremur í sömu könnun Redfield & Wilton að 46% teldu að mikilvægara væri fyrir Bretland að geta ráðið eigin lagasetningu en að eiga í greiðari viðskiptum við Evrópusambandið en 39% voru því ósammála. Einnig sögðust fleiri telja mikilvægara væri fyrir Bretland að geta átt í greiðari viðskiptum við restina af heiminum (44%) en sambandið (39%). Þá töldu fleiri einnig að málið væri afgreitt og ætti ekki að opna það ný, eða 44%, á meðan 40% voru því ósammála.

Fleiri sögðust að sama skapi telja að útganga Bretlands úr Evrópusambandinu væri ekki fullklárað verkefni í skoðanakönnun YouGov í sama mánuði eða 47% gegn 29%. Fullyrðingar sem stundum hafa heyrzt um að Bretar vilji ganga aftur í sambandið og sjái eftir útgöngunni standast þannig ljóslega enga skoðun. Sem fyrr segir eru þeir í reynd ekki andvígir útgöngunni sem slíkri sé horft til kannanir heilt á litið heldur einfaldlega því hvernig að henni var staðið af hálfu stjórnmálamanna.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Tower Bridge í London, höfuðborg Bretlands. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)