Haldið var upp á 150 ára afmæli dönsku krónunnar síðastliðinn miðvikudaginn en hún var sett á laggirnar 1. janúar árið 1875. Fjallað er meðal annars um tímamótin á vef dönsku fréttaveitunnar Ritzau og um leið niðurstöður skoðanakönnunar sem framkvæmd var fyrir fréttaveituna í desember um það hvort Danir vildu halda krónunni eða skipta henni út fyrir evruna. Mikill meirihluti aðspurðra, eða 77%, vildi halda í krónuna en aðeins 13% vildu taka upp evruna.
Meirihluti danskra kjósenda hafnaði því að taka upp evruna í stað dönsku krónunnar í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2000. Þar áður hafði Maastricht-sáttmála Evrópusambandsins verið hafnað í þjóðaratkvæði 1992 en með honum var evran sett á laggirnar. Dönskum kjósendum var í kjölfarið gert að kjósa aftur um sáttmálann árið eftir með fjórum undanþágum vegna atriða sem talið var að hefðu einkum stuðlað að höfnun sáttmálans. Þar á meðal frá evrunni.
Hins vegar hefur gengi dönsku krónunnar verið tengt við gengi evrunnar innan ákveðinna vikmarka frá því að hún kom til sögunnar. Forsaga þess er sú að gengi dönsku krónunnar var áður tengt við gengi þýzka marksins sem varð síðar hluti af evrunni. Ástæða þess er aftur fyrst og fremst sú að danska hagsveiflan er mjög í takti við þá þýzku og vaxtaákvarðanir seðlabanka Evrópusambandsins taka einkum mið af stöðu mála í efnahagslífi Þýzkalands.
Tal um að Ísland þurfi að taka upp evruna sem gjaldmiðil er meðal annars áhugavert í ljósi þess að einungis eitt af hinum norrænu ríkjunum fjórum hefur gert það, Finnland, á meðan hin þrjú hafa afþakkað hana. Þannig hafa bæði Danir og Svíar hafnað evrunni í þjóðaratkvæði og Norðmenn hafa hafnað inngöngu í Evrópusambandið með sama hætti og þar með um leið evrunni. Hins vegar tók Finnland upp evruna án þess að það væri borið undir finnsku þjóðina.
Taldar eru allar líkur á því miðað við niðurstöður skoðanakannana á sínum tíma að evrunni hefði verið hafnað af kjósendum í Þýzkaland hefðu þeir fengið að segja álit sitt á þeirri ákvörðun að fórna þýzka markinu fyrir hana. „Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna,“ sagði Helmut Kohl, sem var kanzlari Þýzkalands þegar þýzk stjórnvöld samþykktu að taka upp evruna, í viðtali árið 2002.
Meira en fjórðungur ríkja Evrópusambandsins hefur ekki tekið upp evruna þrátt fyrir að ríkin séu öll fyrir utan Danmörku lagalega skuldbundin til þess og verið árum og jafnvel áratugum saman. Í flestum tilfellum vegna þess að þau hafa einfaldlega ekki viljað það. Vitanlega er áhugavert í ljósi áherzlu hérlendra Evrópusambandsinna á inngöngu í sambandið, einkum og sér í lagi til þess að geta tekið upp evruna, að ríki sem þegar eru innan þess kæri sig ekki um hana.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kaupmannahöfn. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
