Hér á eftir fer samantekt á skýrslu þar sem fjallað er um Evrópusambandið og sjávarútvegshagsmuni Íslands. Skýrslan er aðgengileg undir Skýrslur í stikunni hér að ofan ásamt fleiri skýrslum um Evrópumálin.
Forsenda þess að mögulegt reyndist að færa út efnahagslögsögu Íslands á síðari hluta 20. aldarinnar, unz hún náði að lokum 200 mílum, var staða landsins sem fullvalda ríkis. Valdið til þess að taka ákvarðanir í þeim efnum á grundvelli íslenzkra hagsmuna var fyrir vikið innanlands í höndum kjörinna fulltrúa þjóðarinnar. Vegna efnahagslegs mikilvægis sjávarútvegar fyrir þjóðarbúið er ljóst að atvinnugreinin hefur lengi verið ákveðin táknmynd fyrir fullveldi þjóðarinnar.
Formlegt vægi ríkja við ákvarðanatöku innan Evrópusambandsins tekur í flestum tilfellum mið af því hversu fjölmenn þau eru, þá einkum í ráðherraráði sambandsins, sem eðli málsins samkvæmt kemur sér bezt fyrir fjölmennustu ríki sambandsins en að sama skapi verst fyrir þau fámennustu. Ríki, sem ekki eiga land að sjó og hafa fyrir vikið engra hagsmuna að gæta í sjávarútvegsmálum, hafa meira vægi þegar ákvarðanir eru teknar í ráðherraráðinu í bæði þeim og flestum öðrum efnum en Ísland hefði innan þess. Þá hefur einróma samþykki ríkja sambandsins innan ráðsins jafnt og þétt heyrt sögunni til og má í dag nánast telja á fingrum annarrar handar þá málaflokka sem það á enn við um. Þar á meðal eru hvorki sjávarútvegs- né orkumál. Þetta hefur að sama skapi komið sér verst fyrir fámennustu ríkin.
Kveðið er með afdráttarlausum hætti á um fullt vald Evrópusambandsins yfir sjávarútvegsmálum innan þess í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf sambandsins. Með inngöngu í Evrópusambandið verða efnahagslögsögur ríkja hluti af sameiginlegri efnahagslögsögu þess sem ríki sambandsins eiga jafnan aðgang að í samræmi við samþykktar reglur. Komið hefur ítrekað fram í máli forystumanna Evrópusambandsins á liðnum árum að varanlegar undanþágur frá yfirstjórn þess séu ekki í boði fyrir ný ríki. Þá sýna rannsóknir að til þessa hafa varanlegar undanþágur í sjávarútvegsmálum ekki verið veittar innan sambandsins.
Komið hefur fram að einungis kunni að vera í boði afmarkaðar tímabundnar undanþágur og sérlausnir sem rúmast þurfi innan ramma meginreglna Evrópusambandsins og sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu þess. Sérlausnir breyta fyrir vikið engu um það að valdið yfir viðkomandi málaflokki er í höndum sambandsins samkvæmt ákvæðum Lissabon-sattmálans. Einungis er þar í raun um að ræða afmarkaðar stjórnsýslubreytingar í samræmi við meginreglur Evrópusambandsins til þess að bregðast við tilteknum aðstæðum.
Málflutningur í röðum þeirra sem talað hafa fyrir inngöngu Íslands í Evrópu- sambandið hefur fyrir vikið tekið verulegum breytingum í gegnum tíðina. Frá því að leggja áherzlu á varanlegar undanþágur yfir í sérlausnir og loks á það að alls engin þörf yrði fyrir nokkur frávik frá regluverki sambandsins. Þar hefur einkum verið horft til reglu Evrópusambandsins um hlutfallslega stöðugar veiðar sem byggir á sögulegri veiðireynslu. Hægt er hins vegar að breyta reglunni eða afnema hana hvenær sem er með auknum meirihluta í ráðherraráði sambandsins og væri mögulegt án stuðnings Íslands þó landið væri innan þess. Þá breytir reglan engu um það að valdið yfir málaflokknum er í höndum stofnana Evrópusambandsins.
Fyrir vikið er ljóst að valdið yfir sjávarútvegsmálum Íslands yrði framselt til Evrópusambandsins kæmi til inngöngu landsins í sambandið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Frá Stykkishólmi. Eigandi: Domenico Convertini – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)
