Fyrir viku ritaði ég grein í Morgunblaðið þar sem ég fjallaði um aðkomu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, að nýlegri skýrslu þings Evrópusambandsins um norðurslóðir. Í skýrslunni, sem samþykkt var með miklum meirihluta atkvæða í þinginu, kemur meðal annars fram að sambandið hafi í hyggju, í samstarfi við ríkisstjórn Íslands, að hafa pólitísk afskipti af umræðunni hér á landi í aðdraganda fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um það hvort sótzt verði á ný eftir inngöngu í það. Þá segir að Þorgerður hafi verið á meðal þeirra sem lagt hafi til efni í skýrsluna.
Fram kemur þannig í skýrslunni að Evrópusambandið ætli að „taka með virkum hætti þátt í því með íslenzku ríkisstjórninni að kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB og vinna að auknum undirbúningi fyrir endurnýjað umsóknarferli ef Ísland virkjar með formlegum hætti umsókn sína.“ Í því sambandi er vert að hafa í huga þau samkomulög sem ráðherrar Viðreisnar hafa undirritað til þessa við sambandið, bæði um utanríkismál og sjávarútvegsmál, þar sem kveðið er á um aðlögun að stefnu þess sem rímar efnislega fullkomlega við þær kröfur sem gerðar eru til umsóknarríkja í umræddum málaflokkum.
Málið rætt í tvígang á Alþingi
Málið varðandi skýrslu Evrópusambandsins um norðurslóðir kom tvisvar til umræðu á Alþingi í síðustu viku. Í fyrra skiptið í umræðum um störf þingsins á fimmtudaginn þar sem Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði það að umtalsefni. Sagði hún ætla að óska eftir upplýsingum um aðkomu Þorgerðar að skýrslugerðinni og í hverju aðstoð hennar hefði falizt. Öllu alvarlegra væri þó að ráðherrann hefði komið að gerð skýrslu þar sem sambandið tilkynnti fyrirætlanir sínar um að skipta sér af þjóðaratkvæðagreiðslunni hér á landi. Það er að segja innanríkismálum þjóðarinnar.
Hins vegar spurði Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, Þorgerði út í málið í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi á föstudaginn. Benti hún á að rætt væri í skýrslunni um fyrirhuguð afskipti Evrópusambandsins af umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins í samstarfi við ríkisstjórnina án nokkurs fyrirvara um að slíkt væri í boði. Með öðrum orðum væri það samkvæmt því frágengið mál. Spurði hún hvort þessi texti væri í skýrslunni með samþykki Þorgerðar og ef ekki hvort ráðherrann hefði þá ekki í hyggju að gera formlega athugasemd við fyrirhugaða íhlutun sambandsins.
Svaraði ekki spurningunum
Viðbrögð Þorgerðar voru áhugaverð þó ekki hafi þau komið á óvart. Skemmzt er frá því að hún kom sér hjá því að svara beinlínis spurningum Ingibjargar. Hún svaraði þannig engu um það hvort umrætt orðalag um afskipti Evrópusambandsins af umræðunni hér á landi væri með hennar samþykki eða hvort hún ætlaði að gera athugasemd við orðalagið um fyrirhuguð afskipti sambandsins af umræðunni hér á landi. Þess í stað sagði hún að erlendum stofnunum, þar á meðal Evrópusambandinu, væri ljóst að ferlið vegna þjóðaratkvæðisins væri innlent ferli og að þær hefðu enga aðkomu að því.
Við þetta bætti hún að auðvitað hitti „utanríkisráðherra fólk, ekki sízt þingmenn og ráðherra sem óska eftir því og á samtal við þá aðila, meira að segja líka þá þingmenn sem hafa verið til að mynda í utanríkisráðuneytum tiltekinna landa eins og til að mynda Eystrasaltsríkjanna“ en aðalhöfundur skýrslunnar er Urmas Paet sem situr á þingi sambandsins fyrir Umbótaflokk Eistlands, systurflokk Viðreisnar en hann er einmitt fyrrverandi utanríkisráðherra Eistlands. Sakaði hún enn fremur þá sem vakið hefðu athygli á málinu meðal annars um hysteríu, taugaveiklun og fleira annarlegt vegna þess.
Kaus að mótmæla því ekki
„Hæstvirtur utanríkisráðherra hefur staðfest hér að hún ætli sem sagt ekki að gera athugasemdir við innihald skýrslu Evrópusambandsins varðandi pólitísk afskipti af innanríkismálum hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá vitum við það,“ sagði Ingibjörg þá í viðbrögðum við orðum Þorgerðar. Í seinna andsvari sínu tjáði hún sig ekki frekar um það mál og mótmælti því ekki. Hægur leikur hefði verið fyrir Þorgerði að hafna því að stjórnvöld ætluðu að vinna með sambandinu að því að reka áróður hér á landi og að orðalaginu í skýrslunni yrði mótmælt. Það gerði hún hins vegar ekki.
Komið hefur fram að Þorgerður og Viðreisn hafi áhyggjur af því að verða eini flokkurinn sem muni beita sér fyrir því að sótzt verði á ný eftir inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðinu. Til að mynda hefur hún gagnrýnt Samfylkinguna, bæði opinberlega og á bak við tjöldin, fyrir að hafa ekki tekið þátt í því. Fyrir vikið hefur væntanlega verið kallað eftir liðsauka í þeim efnum frá Brussel. Samfylkingin hefur ljóslega kosið að láta Viðreisn um að bera hitann af málinu en ber þó samábyrgð á því sem gert er í stjórnarsamstarfinu. En hvað með Flokk fólksins spyrja margir? Er hann sáttur við þetta?
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Birtist áður í Morgunblaðinu 16. desember 2025)
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
