„Þetta eru þriðju alþingiskosningarnar í röð þar sem Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi. Slíkt fylgistap kosningar eftir kosningar er óviðunandi og hlýtur að kalla á allsherjar naflaskoðun innan flokksins. Leita þarf allra leiða til að snúa þessari óheillaþróun við og auka fylgið á ný,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í grein í Morgunblaðinu 5. desember þar sem hann bendir meðal annars á það að flokkurinn hafi í þingkosningunum missti rúmlega fimmtung fylgis síns miðað við síðustu kosningar á undan og hlotið minnsta fylgi sem hann hafi fengið í sögu sinni eða 19,4%.
„Það væri sjálfsblekking að láta eins og um kosningasigur væri að ræða. Hitt er svo annað mál að úrslitin eru mun skárri en skoðanakannanir gáfu til kynna stærstan hluta baráttunnar. Lengi mældist Sjálfstæðisflokkurinn með afar lítið fylgi og leit út fyrir að hann myndi bíða afhroð í kosningunum,“ segir Kjartan enn fremur. Á lokasprettinum hafi flokkurinn hins vegar náð að snúa vörn í sókn. „Þann árangur má þakka hundruðum sjálfboðaliða, sem brugðust við á ögurstundu og lögðust á eitt við að afla flokknum atkvæða með því að hafa beint samband við þúsundir kjósenda um allt land.“
Mikilvægt sé að leiðir til úrbóta verði ræddar af hreinskilni og hispursleysi innan Sjálfstæðisflokksins. Ekki sízt samstarf eininga innan hans. „Endurskoða þarf innra starf flokksins og meta hvort nægilega vel sé staðið að kosningabaráttu hans sem og starfinu á milli kosninga. Stórefla þarf kynningarstarfið. Þá er ljóst að auka þarf samstarf og samvirkni milli skipulagsheilda innan flokksins, t.d. þingflokks, sveitarstjórnarmanna, sjálfstæðisfélaganna og starfsliðs Valhallar. Allar þessar einingar eru mikilvægar og með nánara samstarfi þeirra á milli væri vafalaust hægt að ná meiri árangri.“
Komið hafi fram í fjölmörgum samtölum við kjósendur að þeir hafi alls ekki horfið frá stuðningi við grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins. „Flokkurinn hefði hins vegar ekki fylgt henni nægilega vel og því þyrfti að veita honum ráðningu. Nokkur mál voru oftar nefnd en önnur í því samhengi, t.d. skattamál, stuðningur við hugmyndir um borgarlínuskatt og forystumál flokksins.“ Þá sé ljóst að niðurstöður kosninganna fwli ekki í sér ákall kjósenda um skattahækkanir og aukin ríkisafskipti. Þannig hafi kjósendur hafnað flokkum lengst á vinstri kanti stjórnmálanna.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
