Flest íslenzk kaupskip eru skráð í Færeyjum en ekki hér á landi. Ástæðan er ekki sízt sú staðreynd að Færeyjar eru ekki aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) eins og Ísland. Fyrir vikið hafa Færeyingar getað boðið kaupskipaútgerðum miklu hagstæðari kjör vegna skráningar í alþjóðlega skipaskrá landsins en við Íslendingar höfum getað vegna EES-samningsins. Færeyska skipaskráin er þar af leiðandi miklu samheppnishæfari en sú íslenzka. Skattaívilnanir sem Færeyingar hafa boðið upp á í þeim efnum hafa verið álitnar ólögmæt ríkisaðstoð samkvæmt samningnum.
Meira en tveir áratugir eru liðnir frá því síðasta íslenzka kaupskipið hvarf af íslenzku skipaskránni og hefur málið skotið upp kollinum annað slagið síðan. Fyrir vikið hefur ekkert kaupskip siglt undir íslenzka fánanum síðan. Málið var síðast til umræðu í Fiskifréttum í byrjun þessa mánaðar í ljósi heimsmálanna. Var þar bent á það að kæmi til ófriðar í heiminum væri fánaríkjum skipa heimilt að yfirtaka þau og nýta í eigin þágu. Haft var eftir Árna Sverrissyni, formanni Félags skipstjórnarmanna, að þar sem ekkert íslenzkt kaupskip væri skráð á Íslandi væri um öryggismál að ræða.
Hvorki innan EES né ESB
Fram kemur í skýrslu sem unnin var fyrir Íslandsstofu árið 2014 að skynsamlegt væri að fara að fordæmi ríkja sem fengið hefðu staðfestingu á fyrirkomulagi kaupskipaskráningar frá Evrópusambandinu eða Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Líkt og til að mynda Noregur hefði gert sem væri líkt og Ísland aðili að EES-samningnum. Færeyingar væru hins vegar í sterkari samkeppnisstöðu en bæði Íslendingar og Norðmenn þar sem þeir stæðu bæði utan við sambandið og EES-samninginn. Mikill ávinningur hefur verið af þessu fyrirkomulagi fyrir Færeyjar sem annars hefði orðið til hér á landi.
„Færeyjar hafa sterkari samkeppnisstöðu en Ísland og Noregur þar sem Færeyjar eru hvorki innan EES né Evrópusambandsins. Þeir þurfa því ekki að innleiða sömu reglur og t.d. Ísland og Noregur,“ segir þannig í skýrslunni. Fyrir vikið hefðu Færeyingar fullt frelsi til þess að setja eigin reglur í þeim efnum. Þeir byðu til að mynda upp á mjög hagstætt skattaumhverfi. Beinar tekjur færeyska landsjóðsins hafa ekki verið miklar vegna skipaskrárinnar en þess í stað hefur verið litið til alls kyns afleiddrar þjónustustarfsemi við skipin sem skapað hefur bæði tekjur og störf í Færeyjum.
Tveir valkostir í stöðunni
„Ljóst er að með því að hafa ósamkeppnisfæra skipaskrá mun Ísland missa af mörgum tækifærum,“ segir áfram í skýrslunni. Tveir valkostir væru í boði. Annars vegar að gera ekki neitt og hins vegar að gera íslenzka alþjóðlega skipaskrá samkeppnishæfa við aðrar skipaskrár. „Ljóst er að Færeyjar eru í sterkari samkeppnisstöðu en Ísland, Noregur og Evrópusambandið,“ segir enn fremur. Hvort kaupskip yrðu skráð í íslenzka skipaskrá í framtíðinni væri óljóst. „Hins vegar er ljóst að ef skráin verður ekki gerð samkeppnishæf þá mun Ísland áfram vera siglingaþjóð án kaupskipa.“
Tilraunir sem gerðar hafa verið af hálfu íslenzkra stjórnvalda til þess að gera íslenzku skipaskrána samkeppnishæfari hafa ekki skilað árangri til þessa og ekki sízt verið stöðvaðar af ESA vegna EES-samningsins. Einnig hafa launamál farmanna spilað þar inn í. Það er að segja hvort laun þeirra ættu að miðast við íslenzka kjarasamninga eða samninga í heimalöndum þeirra. Það hefur hins vegar verið leyst í Færeyjum með því að bjóða upp á fulla endurgreiðslu tekjuskatts áhafna kaupskipa. Slíkar skattaívilnanir eru hins vegar óheimilar hér á landi vegna EES-samningsins.
Skilningsleysi í Brussel
Hvað kaupskipaútgerð á Íslandi varðar hafa nú bætzt við kröfur frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn um að íslenzk skipafélög greiði háa kolefnisskatta sem ljóst er að setja muni stórt strik í reikninginn bæði fyrir rekstur þeirra og samkeppnishæfni. Hið sama á við um flug til og frá landinu. Stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki staðið sig í hagsmunagæzlu í þeim efnum en á sama tíma hefur sáralítill skilningur verið á því hjá Evrópusambandinu hversu háð Ísland er bæði flugi og sjóflutningum þegar kemur að flutningum til og frá landinu.
Við höfum verið aðilar að EES-samningnum í rúm 30 ár. Færa má ákveðin rök fyrir því að aðildin hafi í byrjun flýtt fyrir ýmsum framfaramálum, aðallega vegna þess hversu aftarlega á merinni íslenzkt samfélag var á þeim tíma. Í seinni tíð hefur hún hins vegar sífellt staðið okkur meira fyrir þrifum í gegnum upptöku á íþyngjandi og kostnaðarsömu regluverki fyrir utan auknar kröfur um framsal valds yfir íslenzkum málum. Tímabært er að skipta honum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning líkt og við gerðum með góðum árangri í tilfelli Bretlands án þess að neitt færi á hliðina.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Birtist áður í Morgunblaðinu 30. desember 2025)
(Ljósmynd: Frá Sundahöfn. Eigandi: Quintin Soloviev – Attribution 4.0 International)
