Hagsmunasamtök útgerða innan Evrópusambandsins, Europêche, hafa kallað eftir því að sambandið grípi til refsiaðgerða vegna samningsins um makrílveiðar sem undirritaður var á þriðjudagsmorguninn á milli Bretlands, Færeyja, Íslands og Noregs. Hins vegar hefur vakið athygli að engin viðbrögð hafa enn borizt frá ríkisstjórn Evrópusambandsins í kjölfar undirritunarinnar. Til að mynda er ekkert að finna í fjölmiðlum í þeim efnum eða á vef sjávarútvegsráðuneytis sambandsins.
Fjallað hefur verið í fjölmiðlum um hótanir frá Evrópusambandinu í garð Noregs vegna makrílveiða en bréf þess efnis var hins vegar sent norskum stjórnvöldum 11. nóvember síðastliðinn. Fyrrnefnt samkomulag var hins vegar undirritað á 16. desember sem áður segir. Þögn sambandsins er til marks um það að samkomulagið sé með óformlegu samþykki þess enda felur það meðal annars í sér að Ísland gefur eftir meira en þriðjung þess sem íslenzk skip hafa veitt á undanförnum árum.
Með makrílsamningnum, sem gerður var á ábyrgð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og fomanns Viðreisnar, fer hlutdeild Íslands þannig úr 16,5% í 10,5% sem er ekki langt frá þeim 7-9% sem Evrópusambandið hafði áður boðið okkur Íslendingum. Komi til þess að sambandið verði við kröfum hagsmunaaðila og grípi til refsiaðgerða vegna makrílveiða munu þær koma ofan á refsiaðgerðir sem þegar eru til staðar af hálfu þess á hérlent kísiljárn.
Makríldeilan var ein helzta hindrunin í umsóknarferlinu að Evrópusambandinu á sínum tíma. Fyrr á árinu undirritaði Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar, samkomulag við Evrópusambandið þar sem kveðið er á um samráð um skiptingu deilistofna. Eina rökrétta skýringin á eftirgjöfinni á hagsmunum Íslands í makrílsamningnum er sú að með honum hafi verið að ryðja burt stórri hindrun í vegi þess að hægt verði að koma landinu inn í sambandið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Frá Reykjavíkurhöfn. Eigandi: Syced)
