Við getum ekki dregið ESB fyrir dóm

Miðað við EES-samninginn er í raun ekki gert ráð fyrir því að ríkin sem aðild eiga að honum en standa utan Evrópusambandsins, Ísland, Noregur og Liechtenstein, geti dregið sambandið fyrir dóm komi til þess að það brjóti gegn samningnum. Líkt og gerðist á dögunum þegar Evrópusambandið ákvað að leggja refsitolla á innflutt kísiljárn frá Íslandi og Noregi þvert á ákvæði hans. Hins vegar getur sambandið í reynd dregið ríkin þrjú fyrir dómstól í þeim efnum.

Fyrirkomulagið samkvæmt EES-samningnum er með þeim hætti að ríkisstjórn Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnin) hefur það hlutverk að hafa eftirlit með því að ríki sambandsins framfylgi honum. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sama hlutverk gagnvart Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Dómstóll Evrópusambandsins dæmir í málum sem snúa að ríkjum þess og EES-samningnum og EFTA-dómstóllinn eins varðandi ríkin þrjú og samninginn.

Hér er um að ræða fyrirkomulag sem nefnt hefur verið tveggja stoða kerfi EES-samningsins, annars vegar ESB-stoðin og hins vegar EFTA-stoðin. Ísland, Noregur og Liechtenstein eiga sem kunnugt er aðild að EFTA, Fríverzlunarsamtökum Evrópu, ásamt Sviss og er EES-samningurinn samningur á milli EFTA og Evrópusambandsins en Svisslendingar höfnuðu aðild að samningnum í þjóðaratkvæði árið 1992 og gerðu þess í stað tvíhliða samninga við sambandið.

Talað hefur gjarnan verið um að stoðirnar tvær stæðu jafnfætis en reyndin er önnur. Þannig ber EFTA-dómstólnum að taka mið af dómaframkvæmd dómstóls Evrópusambandsins ef fordæmum er fyrir að fara en ekki á hinn veginn og ESA ber að taka mið af ákvörðunum ríkisstjórnar sambandsins en því er ekki öfugt farið. Með öðrum orðum getur ríkisstjórn Evrópusambandsins haft áhrif á ákvarðanir ESA um að draga til dæmis Ísland fyrir EFTA-dómstólinn.

Hægt er samkvæmt EES-samningnum að skjóta málum til gerðardóms en það verður að vera dómstóll Evrópusambandsins sem getur ekki beinlínis talizt hlutlaus dómstóll í þeim efnum auk þess sem hann er þekktur fyrir það að dæma iðulega sambandinu í vil. Hins vegar er það háð samþykki Evrópusambandsins. Hugsanlega mætti vísa deilumálum til annars dómstóls sem væri að sama skapi háð samþykki þess og telja verður ólíklegt að fengist.

Forystumenn Evrópusambandsins hafa haldið því fram að refsitollar þess rúmist innan EES-samningsins en ljóst er hins vegar að umrætt ákvæði var hugsað ef neyðarástand skapaðist sem engan veginn er fyrir hendi innan sambandsins varðandi kísiljárn. Um mjög takmarkaða hagsmuni er að ræða fyrir það sem varða innan við tvö þúsund störf á um 200 þúsund manna vinnumarkaði. Miðað við það væri hægt að grípa mjög reglulega til ákvæðisins.

Fyrir vikið geta Ísland og Noregur í raun ekki sótt rétt sinn gagnvart Evrópusambandsins nema með samþykki þess og þá fyrir dómstóli sambandsins. EES-samningurinn gerir einfaldlega ekki ráð fyrir því. Ríkin tvö ásamt Liechtenstein sitja þannig engan veginn við sama borð og Evrópusambandið á grundvelli samningsins. Ekki frekar en raunin yrði innan sambandsins gagnvart fjölmennari ríkjum þess enda fer vægi ríkja þar einkum eftir íbúafjölda þeirra.

Með inngöngu í Evrópusambandið yrði þannig farið úr öskunni í eldinn eins og í öðrum efnum. Væri EES-samningnum hins vegar skipt út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning, eins og ríki heimsins kjósa að semja um sín á milli í dag og eins og við gerðum í tilfelli Bretlands án þess að neitt færi á hliðina, yrði gerðadómi, skipuðum einum dómara tilnefndum af hvorum aðila og síðan hlutlausum formanni sem sátt væri um, falið að úrskurða í deilumálum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fánar aðildarrríkja EFTA ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)