Fleiri andvígir bókun 35 en hlynntir

Fleiri eru andvígir frumvarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn en hlynntir samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Prósent vann fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, dagana 12.-22. desember. Þannig eru 43% andvíg frumvarpinu en 31% hlynnt. Sé aðeins miðað við þá sem tóku afstöðu með eða á móti eru rúm 58% andvíg frumvarpinu en 42% hlynnt. Andstaðan við það hefur aukist umtalsvert og stuðningur við það að sama skapi dregizt saman frá sambærilegri könnun Prósents fyrir rúmu ári síðan.

Frumvarpið felur í sér að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum verði veittur forgangur á aðra almenna löggjöf hér á landi. Verði frumvarpið að lögum verður þannig til ný forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem þegar eru fyrir hendi þegar almenn lagasetning er annars vegar, þar sem yngri lög frá Alþingi hafa forgang gagnvart eldri og sértækari gagnvart almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt og aðeins eitt að umrædd löggjöf feli í sér innleiðingu á regluverki sem við fáum frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn.

Mest andstaða við frumvarp utanríkisráðherra er í röðum stuðningsmanna Miðflokksins eða 68%. Hlynntir eru 6%. Næstmest andstaða er á meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins eða 64% á móti 13% sem styðja frumvarpið. Þá kemur Sjálfstæðisflokkurinn með 62% andvíg en einungis 3% hlynnt. Mestur stuðningur við frumvarpið er á meðal stuðningsmanna Samfylkingarinnar, af þeim flokkum sem sæti eiga á Alþingi, eða 48% á móti 12% sem eru andvíg því og næstmestur í röðum stuðningsmanna Viðreisnar eða 40% á móti 22%. Þá kemur Flokkur fólksins með 25% hlynnt en 23 andvíg.

Fleiri eru andvígir frumvarpinu en hlynntir í nær öllum öðrum þjóðfélagshópum hvort sem horft er til kyns, aldurs, búsetu, tekjum, hjúskaparstöðu eða stöðu á vinnumarkaði. Einu hóparnir þar sem eilítið fleiri eru hlynntir frumvarpinu eru háskólamenntaðir, þeir sem eru með tekjur undir 400 þúsund krónum á mánuði og tekjur yfir einni milljón. Þar munar þó mjög litlu eða 1-2 prósentustigum. Þetta er mikil breyting frá könnuninni haustið 2024 þegar fleiri voru hlynntir en andvígir í ófáum hópum. Frumvarpið var lagt frá í þriðja skiptið síðasta haust og stefnt að afgreiðslu þess á vorþinginu.

Spurningin í könnuninni var svohljóðandi: „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið (bókun 35)? Breytingin felst í því að þegar lög sem byggja á EES-samningum stangast á við önnur almenn íslensk lög, þá skulu hin fyrrnefndu ganga framar, nema Alþingi hafi ákveðið annað.“ Með öðrum orðum var texti spurningarinnar tekinn efnislega beint upp úr frumvarpinu og heiti þess í meðförum þingsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fánar EFTA/EES-ríkjanna ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)