Trudeau ætlar að segja af sér

Forsætisráðherra Kanada og leiðtogi Frjálslynda flokksins, Justin Trudeau, tilkynnti í ávarpi til kanadísku þjóðarinnar í dag að hann ætlaði að segja af sér sem forsætisráðherra og leiðtogi Frjálslynda flokksins. Sagðist hann þó ætla að sitja áfram þar til flokksmenn hefðu valið sér nýjan leiðtoga sem gæti leitt flokkinn í þingkosningum í kjölfarið.

Hart hefur verið sótt að Trudeau, sem verið hefur forsætisráðherra frá árinu 2015 og leiðtogi Frjálslynda flokksins síðan 2013, en fjarað hefur undan honum og minnihlutastjórn hans jafnt og þétt undanfarin misseri. Meðal annars hefur Trudeau sætt vaxandi gagnrýni úr röðum eigin þingmanna sem höfðu hvatt hann til þess að segja af sér.

Trudeau hefur meðal annars verið gagnrýndur harðlega vegna stöðu efnahagsmála í Kanada og hvernig haldið hafi verið á útlendingamálum landsins. Enn fremur hefur húsnæðisverð hækkað mikið þar sem ekki hefur verið byggt nægjanlega mikið til þess að anna eftirspurn. Þá hefur almennur framfærslukostnaður almennings aukist mikið.


Vantraust hafði verið boðað á Trudeau af Pierre Poilievre, leiðtoga Íhaldsflokksins, þegar kanadíska þingið kæmi saman síðar í mánuðinum en flokkur hans hefur verið að mælast með mest fylgi í skoðanakönnunum, 45% í þeirri nýjustu, á meðan Frjálslyndi flokkurinn stendur frammi fyrir miklu fylgistapi, með aðeins 16% í þeirri könnun.

Kallað hefur verið eftir því að þingkosningar fari fram sem fyrst en fyrir liggur hins vegar að leiðtogakjör innan Frjálslynda flokksins mun taka tíma. Fyrir vikið er ekki ljóst hvenær kosningarnar fara fram. Hvenær sem það verður er talið líklegast að Poilievre, sem leitt hefur Íhaldsflokkinn frá árinu 2022, verði næsti forsætisráðherra Kanada.

Meðal annars hafa þau rök verið færð fram fyrir því að kosningar fari sem fyrst fram, ekki sízt af Poilievre, að nauðsynlegt sé að tryggja verði að sterk ríkisstjórn með ferskt umboð frá kjósendum verði við völd í Kanada eftir að Donald Trump taki við sem forseti Bandaríkjanna í ljósi hótana hans um að leggja háa tolla á innfluttar kanadískar vörur.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada. Eigandi: Hvíta húsið)