Miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu telja einungs 12,4% landsmanna að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hafi gripið til hafi haft jákvæð áhrif á fjárhagsstöðu þeirra. Fram kemur í frétt Vísis að miðað við könnunina og sambærilega könnun fyrir ári síðan þegar ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins tók við völdum virtist hún ekki hafa staðið undir þeim væntingum sem meirihluti landsmanna hefði haft til hennar á því ári sem liðið væri síðan.
Mun fleiri væntu þess fyrir ári að aðgerðir ríkisstjórnarinnar myndu hafa jákvæð áhrif á fjárhag þeirra eða 32,4%. Þá töldu 24,6% að aðgerðir stjórnarinnar hefðu slæm áhrif í þeim efnum en nú telja 38,9% að sú hafi verið raunin. Meira en helmingur landsmanna, eða 56,8%, töldu að aðgerðir ríkisstjórnarinnar myndu hafa jákvæð áhrif á efnahagsmál landsins en nú telja aðeins 30,2% að þær hafi gert það. Hliðstætt er að segja um heilbrigðismál, samgöngumál og menntamál.
Könnunin nú er birtingarmynd umræðunnar í þjóðfélaginu undanfarna mánuði. Hvers vegna staðan sé ekki betri. Vextir hafi ekki verið negldir niður eins og lofað hafi verið og verðbólgan hjakki í sama farinu. Ein skýringin sem nefnd hefur verið er sú að allavega einn stjórnarflokkanna, Viðreisn, þessi með fjármálaráðherrann, hafi ekki póltískan hag af því. Þá vildu einungis enn færri ganga í Evrópusambandið. Eða eins og einn orðaði það: „Hvers vegna ættu hlutirnir þá að lagast?“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
